Loverboy, Zainab & Sammi

Loverboy (SL), Zainab (SL), Samúel J. Samúelsson (IS)

Tónleikum Loverboy, Zainab og Samma frestað til 2024

Því miður neyðumst við til að tilkynna að tónleikum dásamlega listafólksins Loverboy og Zainab frá Sierra Leone sem ætluðu að koma fram með Stórsveit Samúels J. Samúelssonar í Gamla bíó hefur nú verið frestað til Listahátíðar 2024. Ástæðan eru vandkvæði í sambandi við vegabréfsáritun þeirra til landsins. Við munum hafa samband beint við alla miðakaupendur.

Það er óhætt að lofa neistaflugi á sviðinu í Gamla bíói þegar þau Loverboy og Zainab koma alla leið frá Sierra Leone til að leika með Samúel Jóni Samúelssyni og stórsveit hans en bæði eru þau landsþekkt á sínum heimaslóðum. Samúel ferðaðist til Sierra Leone haustið 2018 og tók þar þátt í söngvasmiðju á vegum Aurora Foundation. Þar tókust góð kynni með þeim Loverboy og Zainab og strax kviknaði áhugi á frekara samstarfi. Það verða því fagnaðarfundir í Gamla bíói þegar stórsveit Samúels býður þetta framúrskarandi tvíeyki velkomið til landsins.

Loverboy syngur gjarnan frumsamda tónlist við eigin undirleik á heimasmíðaðan gítar auk þess sem hann trommar með fætinum á bassatrommukassa. Zainab er söngkona hljómsveitarinnar Jelliba‘s sem leikur hefðbundna þjóðlagatónlist frá Vestur-Afríku og er ein ástsælasta sveit Sierra Leone. Samúel Jón Samúelsson Big Band þarf vart að kynna en þetta verða fyrstu tónleikar sveitarinnar síðan fyrir heimsfaraldur og meðlimir hennar því fullir tilhlökkunar að leika saman á ný.

Samstarfsaðili:

8. JÚN - 8. JÚN

Dagsetning

8. júní 2022, kl. 20:00

Staðsetning

Verð

Kr. 4.500

Listafólk

Loverboy (SL), Zainab (SL), Samúel Jón Samúelsson (IS)

Aðgengi

Hjólastólarampur er staðsettur fyrir framan inngang í Petersen-svítuna sem gestir Gamla bíós hafa aðgang að. Lyfta er að salerni fyrir hreyfihamlaða í kjallara.

STRÆTÓ: 1, 6, 11, 12, 13, 14

Merktu daginn