1.-16. júní 2024

4. september 2020

Víkingur Heiðar í beinu streymi

Víkingur Heiðar Ólafsson hlaut í vikunni hin virtu þýsku tónlistarverðlaun; Opus Klassik, annað árið í röð. Í þessu sinni var hann verðlaunaður fyrir upptöku sína á verkum frönsku tónskáldanna Debussy og Rameau sem hefur hvarvetna hlotið einróma lof. Víkingur mun flytja þessa sömu efnisskrá á langþráðum opnunartónleikum Listahátíðar í Reykjavík 9., 10. og 11. október næstkomandi en upprunalega áttu þeir að fara fram 6.-7. júní og svo 6.-7. september.

Starfsfólk Listahátíðar hefur unnið hörðum hönum að því að finna öllum viðburðum hátíðarinnar nýjar dagsetningar en líkt og í þessu tilfelli verður ekki við samkomutakmarkanir ráðið. Til þess að bæta tónleikagestum upp biðina verður boðið upp á samhliða beina útsendingu á Facebook-síðum Listahátíðar í Reykjavík og Hörpu þar sem Víkingur mun leika valin verk af efnisskránni á heimili sínu og spjalla við tónleikagesti heima í stofu. Viðburðurinn hefst kl. 17 á sunnudaginn 6. september næstkomandi.