1.-16. júní 2024

26. maí 2020

Damon Albarn – Ný dagsetning

Ný dagsetning hefur verið staðfest fyrir tónleika Damon Albarn á Listahátíð þann 28. mars 2021.

Listamaðurinn kom sér fyrir í hlöðu á dögunum og flutti efni af nýrri plötu sinni, The Nearer The Fountain, More Pure The Stream Flows, í svokölluðu home broadcast hjá Boiler Room. Verkið var samið á Íslandi og hér eru rúmar 20 mínútur af efni til að gefa okkur hugmynd um það sem koma skal á tónleikunum í Eldborg.

Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Sena Live.