Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Miðasala hafin á STOFUTÓNLEIKA og HÚSLESTRA

25/3/2009

  • Sigrún Hjálmtýs og Stofukvartettinn
  • Þorsteinn frá Hamri
  • Ásgerður Júníusdóttir
  • Sigurbjörg Þrastardóttir
  • Bloodgroup

Meðal fjölmargra viðburða á Listahátíð í Reykjavík í vor eru 25 stofutónleikar sem haldnir verða á jafn mörgum heimilum helgina 22.-24. maí og 11 húslestrar þar sem skáld og rithöfundar efna til húslestra á heimilum sínum helgina 30.-31. maí.

 

Framúrskarandi tónlistarmenn/hópar úr sígildri tónlist, djassi, poppi, rokki, raftónlist og fleiri kimum koma fram og leika tónlist í einstakri nálægð við áheyrendur. Meðal þeirra eru Dvorák-hópurinn, Bloodgroup, Melakvartettinn, Ólöf Arnalds, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Felix Bergsson, Áshildur Haraldsdóttir, Ásgerður Júníusdóttir, hljómsveitin Reykjavík!, Vicky, Bergþór Pálsson, Diddú, Hlíf Sigurjónsdóttir og Martin Frewer, Melchior,Tómas R. Einarsson, og svo mætti áfram telja.

Sjá heildaryfirlit yfir Stofutónleikana 25 hér.

Stofutónleikarnir verða víðsvegar um Reykjavík, frá póstnúmerum101 til111.

 

11 skáld og rithöfundar  verða með húslestra á heimilum sínum á Listahátíð í Reykjavík laugardaginn og sunnudaginn, 30. og 31. maí. Hér er um einstaka og spennandi viðburði að ræða, en aðgangur er takmarkaður við stofustærð hvers og eins þannig að færri komast örugglega að en vilja. Hér gefst sögulegt  tækifæri til að kynnast ólíkum höfundum og verkum þeirra í návígi. Ljóð, sögur, brot úr stærri verkum, barnaefni, smáprósi, útgefið og óbirt – allt í senn!  Þau 11 skáld og rithöfundar sem flytja húslestra í lok maí eru Kristín Helga Gunnarsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Þórarinn Eldjárn, Guðrún Eva Mínervudóttir, Bragi Ólafsson, Einar Már Guðmundsson, Gerður Kristný, Þorsteinn frá Hamri, Sigurbjörg Þrastardóttir, Sigurður Pálsson og Þórunn Erlu Valdimarsdóttir.

Líkt og stofutónleikarnir verða húslestrarnir víða um Reykjavík, nema einn húslestur mun fara fram í póstnúmeri 210.

Sjá heildaryfirlit Húslestranna 11 hér.

 

Miðasala á stofutónleika og húslestra hófst kl. 12.00 miðvikudaginn 25. mars en miðar eru eingöngu seldir á hér á vef Listahátíðar og  www.midi.is. Örfáir miðar eru í boði á hverja stofutónleika og hvern húslestur, og er fólki aðeins hleypt inn gegn framvísun aðgöngumiða.  Miðaverði er mjög stillt í hóf, verð á stofutónleika er 1.500 krónur en húslestra 1.000 krónur.

Listahátíð í Reykjavík 2009 verður haldin 15.-31. maí. Þegar hafa sópransöngkonan Deborah Voigt og breska tríóið Tiger Lillies verið kynnt til sögunnar.

Kraumur styður þátttöku ungra tónlistarmanna á Stofutónleikum Listahátíðar í Reykjavík.

KAUPA MIÐA

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica