Hönnuður merkis Listahátíðar fallin frá
Ágústa Snæland, sem vann samkeppni árið 1969 um merki Listahátíðar í Reykjavík er nú fallin frá.
Ágústa var fyrsti menntaði auglýsingateiknarinn sem við Íslendingar eignuðumst og líklega hafa ekki allir gert sér grein fyrir að kona var fyrst til þess að læra þetta fag hér landi.
Merki Listahátíðar sem hannað var fyrir nærri 40 árum síðan er enn í notkun. Nokkrum sinnum hefur komið til greina að skipta um merki, en allir sem um málið hafa fjallað hafa komist að því að afar erfitt er að gera betra merki en hið einfalda, sígilda, stjörnulaga blóm, sem prýtt hefur þúsundir listviðburða og kynningargagna hátíðarinnar öll þessi ár.
Fyrir hönd allra þeirra sem prýtt hafa list sína með hinu einfalda blómi vill Listahátíð þakka Ágústu fyrir hennar frábæra framlag til hátíðarinnar og fyrir frumkvæði og mikinn samstarfsvilja öll þessi ár.
Ágústa kom á skrifstofu Listahátíðar vorið 2007 og þáði kaffi og köku sem var skreytt með hennar fallega merki í hinum upprunalegu fjólubláu litum. Meðfylgjandi mynd er frá þeirri heimsókn. Hún færði okkur þá myndir til þess að hafa á skrifstofunni sem hún hafði klippt út úr litum merkisins og sagði okkur frá kveikjunni að þessu merki: Fjallahringurinn í Reykjavík og um leið fíngert blóm arfans sem við öll þekkjum.
Listahátíð þakkar Ágústu framlag sitt til Listahátíðar og grafískrar hönnunar á Íslandi.
