Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Fjöldi spennandi Stofutónleika

4/12/2008

Mikill fjöldi afar spennandi umsókna barst um að fá að halda Stofutónleika á Listahátíð í Reykjavík næsta vor.

StofutónleikarauglýsingGreinilegt er á fjölda og breidd umsækjenda að mikill gróska er eftir sem áður í íslensku tónlistarlífi en þeir sem sóttu um eru úr sígildri tónlist, djassi, poppi, rokki, raftónlist og fleiri kimum tónlistar. Fjöldi flytjenda mátti vera frá einum til fimm og þar var líka leikið á alla strengi. Augljóst er að tónlistarmönnum finnst það spennandi kostur að fá tækifæri til þess að bjóða fólki heim stofu til sín og njóta nálægðar við áheyrendur.

Áætlað var að halda tónleikana á Listahátíð á tveggja tíma fresti víðsvegar um borgina einn sunnudag í maí en vegna sterkra viðbragða, spennandi tónlistarmanna og vandaðra umsókna hefur verið ákveðið að fjölga dögunum í þrjá.

Valnefndina skipa fulltrúar Listahátíðar í Reykjavík, Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT) og Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH).

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica