Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Umsóknarfrestur um Stofutónleika rann út 25. nóvember

12/11/2008

StofutónleikarauglýsingÁ dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2009, sem haldin verður dagana 15. - 31. maí verða meðal annars stofutónleikar á heimilum víðsvegar um Reykjavík. Af því tilefni óskar Listahátíð eftir tónlistarfólki á öllum sviðum tónlistar.

Fjöldi flytjenda má vera frá einum til fimm. Umsóknum þurfa að fylgja upplýsingar um efnisskrá, flytjendur og húsnæði sem tekur að lágmarki 25 manns í sæti. Hugmyndin um stofutónleika á Listahátíð 2009 felur í sér að fá framúrskarandi tónlistarmenn til þess að bjóða gestum heim í stofu til sín. Þannig fá áheyrendur einstakt tækifæri til að njóta tónlistar í nálægð við listamennina. Til stendur að tónleikarnir fari fram á tveggja tíma fresti víðsvegar um borgina sunnudaginn 24. maí. Áætlað er að hverjir tónleikar verði 30 til 40 mínútna langir.

Valið verður úr innsendum umsóknum og öllum umsækjendum svarað. Valnefndina skipa fulltrúar Listahátíðar í Reykjavík, Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT) og Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH).

Umsóknir áttu að berast eigi síðar en á miðnætti; 25. nóvember til Listahátíðar í Reykjavík, pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar STOFUTÓNLEIKAR. Nánar verður greint frá greiðslu fyrir tónleikahaldið við afgreiðslu umsókna. Sjá einnig auglýsingar í Fréttablaðinu 16. október og Morgunblaðinu 17. október.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica