Miriam Makeba látin
Suður-afríska söngkonan Miriam Makeba er látin, 76 ára að aldri.
Hún hné niður á tónleikum utan við Napólí á Ítalíu í gærkvöldi og var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést af völdum hjartaáfalls. Makeba var á sínum tíma tákn fyrir baráttuna gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku og bjó í útlegð í þrjá áratugi en snéri aftur heim á tíunda áratug síðustu aldar eftir að Nelson Mandela var sleppt úr fangelsi. Hann lét það verða eitt sitt fyrsta verk þegar hann var leystur úr ánauð að bjóða hana velkomna aftur til heimalandsins.
Miriam Makeba, eða Mama Africa eins og hún er nefnd, er einn af stærstu listamönnum síðustu aldar og sá sem líklega hefur haft mesta þýðingu fyrir afríska tónlist. Hún vakti fyrst alþjóðlega athygli þegar hún söng með Harry Belafonte á sjöunda áratugnum og fengu þau Grammy verðlaunin árið 1966. Nokkru síðar gerði hún sitt þekktasta lag “Pata Pata” sem sló öll sölumet vestan hafs og austan og enn minnast menn þess þegar hún söng með Marilyn Monroe í afmæli Kennedy forseta árið 1962. Makeba átti mikilvægt “comeback” árið 2001 með plötunni “Homeland” sem samstundis fór á metsölulista og var tilnefnd til Grammy verðlauna. Eftir það tileinkaði hún líf sitt mannréttindamálum m.a. í gegnum UNICEF og söng á tónleikum víða um heim. Þar á meðal á eftirminnilegum tónleikum á Listahátíð í Reykjavík í maí, 2006 í Laugardalshöll.
Makeba fæddist í Jóhannesarborg 4. mars 1932.
Móðir hennar var af ættbálki Swasimanna og faðir hennar var af ættbálki Xhosa. Hún vakti alþjóðlega athygli þegar hún söng með flokknum Manhattan Brothers, sem fór í tónleikaferð um Bandaríkin 1959 en hún var svipt suður-afrískum ríkisborgararétti ári síðar. Makeba var á Ítalíu til að taka þátt í tónleikum til styrktar rithöfundinum Roberto Saviano, sem hefur skrifað um ítölsku mafíuna og fengið líflátshótanir fyrir vikið.
