Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Athugasemd um Listahátíð

15/10/2008

Athugasemd um Listahátíð. Birt í Morgunblaðinu 10.08 2008: Vegna umræðna um skipun og hlutverk stjórnarformanns Listahátíðar í Reykjavík er rétt að taka fram að stjórnarformaður Listahátíðar kemur ekki að mótun dagskrár Listahátíðar, vali á listamönnum eða samningum við þá. Það er hlutverk listræns stjórnanda Listahátíðar, sem jafnframt er yfirmaður stofnunarinnar. Sama fyrirkomulag er við aðrar listastofnanir hér á landi eins og t.d. Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið, Íslenska dansflokkinn og Íslensku óperuna. Samkvæmt skipulagsskrá Listahátíðar í Reykjavík ber stjórn hennar ábyrgð á rekstri stofnunarinnar og fjárreiðum og samþykkir fjárhagsáætlanir. Inga Jóna Þórðardóttir var skipuð fulltrúi borgarstjórans í Reykjavík í stjórn Listahátíðar haustið 2006 og hefur frá þeim tíma verið fulltrúi fjögurra borgarstjóra í stjórninni; Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, Dags B. Eggertssonar, Ólafs F. Magnússonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur núverandi borgarstjóra. Fulltrúi borgarstjóra og fulltrúi menntamálaráðherra hafa frá upphafi skipst á að gegna formennsku í stjórninni eins og fram kemur í skipulagsskrá Listahátíðar. Í samræmi við þá reglu tók Inga Jóna við stjórnarformennsku hátíðarinnar nú í október. Inga Jóna hefur verið formaður Leikfélags Reykjavíkur um árabil og hefur þar sambærilegt hlutverk með höndum og í stjórn Listahátíðar. Listahátíð væntir góðs af störfum hennar sem stjórnarformanns. Hrefna Haraldsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica