Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Tímamótafundur hjá Listahátíð

30/10/2008

Tímamótafundur hjá Listahátíð

Á fjölmennum fulltrúaráðsfundi Listahátíðar í Reykjavík sem haldinn var í Þjóðmenningarhúsinu 30. október bar margt til tíðinda. Fluttar voru skýrslur fráfarandi formanns stjórnar Listahátíðar, Ingimundar Sigfússonar og Hrefnu Haraldsdóttur listræns stjórnanda, einnig gerði Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri grein fyrir fjárhagsuppgjöri liðins árs og áætlunum næsta árs og kom fram að allar áætlanir stóðust vel á síðustu hátíð. Á fundinum tók Inga Jóna Þórðardóttir áður varaformaður við formennsku í stjórn Listahátíðar af Ingimundi sem þakkað voru vel unnin störf. Hann mun nú taka sæti Ingu Jónu og sitja áfram sem varaformaður. Margrét Bóasdóttir situr áfram í stjórn hátíðarinnar fyrir hönd fulltrúaráðsins. Fráfarandi formaður fulltrúaráðs, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, bauð velkominn til starfa nýjan formann fulltrúaráðsins, borgarstjórann í Reykjavík, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Menntamálaráðherra varð frá og með fundinum varaformaður fulltrúaráðsins.

Tímamót sem ástæða er að gleðjast yfir
Einn merkasti áfangi fundarins var afgreiðsla skipulagsskrár Listahátíðar í Reykjavík og félagssamþykkta fulltrúaráðsins í samræmi við ákvörðun fulltrúaráðsfundar haustið 2005. Samkvæmt þeim er nú Listahátíð í Reykjavík orðin sjálfseignarstofnun. Af því tilefni sagði stjórnandi hátíðarinnar, Hrefna Haraldsdóttir að undirritaður yrði á næstunni þríhliða samningur menntamálaráðherra, borgarstjóra og Listahátíðar til þriggja ára til að byrja með, en allt frá stofnun hátíðarinnar hafi ávallt verið gerður samningur til eins árs í senn: „Þetta eru því tímamót sem ástæða er að gleðjast yfir. Með þessu lýsa stofnaðilar Listahátíðar; ríki og borg, eindregnum vilja til að treysta hátíðina enn frekar í sessi og sýna í verki að um leið og byggt er á reynslunni er horft af bjartsýni til framtíðar. Við tímamótin fær Listahátíð í Reykjavík sérstaka skipulagsskrá og fulltrúaráðið nýjar samþykktir. Ég vonast til að eiga gott samstarf við ykkur í fulltrúaráðinu á næstu árum með það að markmiði að vinna að að sameiginlegum hagsmunum okkar.“

Starf listræns stjórnanda og stjórn Listahátíðar
Listrænn stjórnandi er yfirmaður stofnunarinnar í fullu starfi. Stjórnandi mótar dagskrá hverrar hátíðar og er ábyrgur fyrir framkvæmd hennar gagnvart stjórn. Stjórnandinn skal leggja fjárhagsáætlun hverrar hátíðar fyrir stjórn til samþykktar og er hann ábyrgur fyrir framkvæmd hennar gagnvart stjórninni. Stjórn stofnunarinnar skal skipuð þremur stjórnarmönnum. Skal einn tilnefndur af menntamálaráðherra, einn tilnefndur af borgarstjóranum í Reykjavík og einn kosinn á aðalfundi fulltrúaráðs, sbr. 4. gr., á tveggja ára fresti. Fulltrúar menntamálaráðherra og borgarstjóra gegna formennsku og varaformennsku í stjórn til skiptis, tvö ár í senn. Hátíð allra listgreina Listahátíð í Reykjavík 2009 verður haldin dagana 15. til 31. maí. Hátíðin sem framundan er verður hátíð allra listgreina hvort sem er á sviði tónlistar, sviðslista, bókmennta eða myndlistar. Dagskráin er í vinnslu og verður kynnt um mánaðamótin mars /apríl 2009. Fundurinn var líflegur og einkar vel sóttur.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica