Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Hrefna tekin við starfi stjórnanda

2/10/2008

Hrefna HaraldsdottirHrefna Haraldsdóttir tók formlega við starfi listræns stjórnanda Listahátíðar í Reykjavík í gær, miðvikudaginn 1. október af Þórunni Sigurðardóttur. Upplýst var um ráðningu Hrefnu í mars síðastliðnum og hóf hún þá þegar undirbúning næstu Listahátíðar sem haldin verður í maí 2009. Hrefna gengdi frá árinu 2001 og þar til nú nýverið starfi framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík. Áður var hún m.a. framkvæmdastjóri Menningarnætur í Reykjavík. Hrefna er bókmenntafræðingur og kenndi íslensku í Menntaskólanum við Hamrahlíð og hefur einnig gert sjónvarpsþætti um íslenska rithöfunda og bókmenntir. Hrefna var í hópi 15 umsækjenda sem sóttu um stöðu listræns stjórnanda Listahátíðar í Reykjavík fyrr á þessu ári.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica