Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Ambra hlýtur Norsku gagnrýnendaverðlaunin

1/10/2008

Ambra

Dansverkið Ambra sem frumsýnt var á Listahátíð í Reykjavík 2008 hlaut á dögunum Norsku gagnrýnendaverðlaunin. Verkið sem er eftir hinn virta danshöfund Inu Christel Johannessen var samið sérstaklega fyrir Íslenska dansflokkinn og Carte Blanche -dansflokkinn í Bergen í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík og Listahátíðina í Bergen. Ambra er eitt stærsta verkefni sem Íslenski dansflokkurinn hefur ráðist í en í því sameinuðust tveir helstu nútímadansflokkar Norðurlanda. Eftir frumsýningu verksins á Listahátíð í Reykjavík í maí var það í framhaldi sýnt á Listahátíðinni í Bergen í júní. Ina Christel Johannessen er einn mest spennandi danshöfundur Evrópu í dag en með henni að þessu verki unnu íslensku tónlistarkonurnar Kira Kira og Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir sem sömdu tónlistina ásamt þýskum samverkamanni sínum, Dirk Desselhaus. Alls taka um 20 dansarar þátt í sýningunni og einnig er beinagrind af heilum hval á sviðinu. Eftirfarandi kemur fram á vefsíðu Norsku gagnrýnendaverðlaunanna: „Það sem gerir þetta verk einstakt er stærðin á því. Formbundnar en á sama tíma tilfinningaríkar hreyfingar dansaranna skapa sinfónískt verk sem mun lifa lengi. Með því að ljá Inu Christel Johanessen 20 dansara var henni gefið einstakt tækifæri til að skapa stórsýningu. Að sjá sýninguna aftur fyrir aðeins nokkrum dögum í Bærum Kulturhus staðfesti þá trú okkar að Ambra er tímamótaverk fyrir dans-, tónlist- og sjónræna sköpun."

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica