Listahátíð í Reykjavík í Art Monthly
Enn eru að birtast greinar um Listahátíð 2008 í erlendum blöðum og tímaritum. Nýlega kom út júlí-ágúst útgáfan af breska listatímaritinu Art Monthly en þar er að finna grein eftir Shumon Basar, blaðamann og sýningarstjóra. Basar fjallar sérlega vel og vandlega um opnunarhelgi Listahátíðar þegar fjölmargar myndlistarsýningar voru opnaðar vítt og breitt um landið. Greinina má lesa í heild sinni á pdf formi hér.
