Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Nýr framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík ráðin

1/7/2008

Jóhanna

Stjórn Listahátíðar í Reykjavík hefur ráðið Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík. Umsóknarfrestur um stöðuna rann út 26. maí sl. Tuttugu og þrjár umsóknir bárust um starfið. Framkvæmdastjóri Listahátíðar er ráðinn frá 1. september 2008. Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir starfaði áður sem forstöðumaður samskiptasviðs Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka hf. en þar áður sem markaðsstjóri hjá Deloitte hf. og Borgarleikhúsinu. Jóhanna Vigdís er með MBA próf úr Háskólanum í Reykjavík, mastersgráðu í menningarfræðum frá Edinborgarháskóla og BA gráðu úr bókmenntafræði frá Háskóla Íslands. Framkvæmdastjóri sér um fjölþættan undirbúning hverrar hátíðar, m.a. daglegan rekstur og stjórn fjármála Listahátíðar, fjáröflun og fleira í umboði stjórnar og listræns stjórnanda. Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir tekur við starfi framkvæmdastjóra Listahátíðar af Hrefnu Haraldsdóttur sem gegnt hefur því starfi í rúm sjö ár en hún tekur við starfi listræns stjórnanda 1. október af Þórunni Sigurðardóttur sem verið hefur listrænn stjórnandi Listahátíðar í átta ár. Listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík er yfirmaður stofnunarinnar og mótar dagskrár hverrar hátíðar.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica