Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Nokkrar myndlistarsýningar halda áfram til hausts

27/6/2008

Nokkrar myndlistarsýninar halda áfram

Nokkrar myndlistarsýningar sem opnaðar voru á upphafsdögum Listahátíðar í Reykjavík frá 15. til 18. maí munu halda áfram til loka sumars. Þær eru sýningin Tilraunamaraþon í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi sem verður opin til 24. ágúst. Í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum heldur sýningin, Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist, áfram til 7. september sem og innsetning landslagsarkitektsins Mörthu Schwarz í bakgarði safnsins. Sýningin íslenskra samtímaljósmyndara, Endurkast, í Ljósmyndasafni Íslands, Þjóðminjasafninu verður opin til 31. ágúst. Þríviður, sýning Hannesar Lárussonar, Guðjóns Ketilssonar og Helga Hjaltalín í Listasafni Reykjanesbæjar verður til 15. ágúst. Sýningin á verkum Magnúsar Kjartanssonar í Listasafni Árnesinga stendur til 20. júlí. Þeir sem eiga erindi norður geta litið augum Greinasafn Önnu Líndal, Bjarka Bragasonar og Hildigunnar Birgisdóttur í Safnasafninu á Svalbarðsströnd til 8. júlí.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica