Listaeyjan Ísland í tímaritinu Condé Nast
Í nýjasta hefti hins virta ítalska ferðatímarits Condé Nast Traveller er að finna fjögurra síðna umfjöllun um „Listaeyjuna Ísland“ sem beinir sjónum sínum sérstaklega að nýliðinni Listahátíð og myndlistarþætti hennar. Greinin, sem er sérlega fallega myndskreytt, leggur mesta áherslu á umfjöllun um sýninguna Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist á Kjarvalsstöðum sem opnaði á Listahátíð og mun standa yfir til hausts. Einnig er viðtal við sýningarstjóra þeirrar sýningar, Æsu Sigurjónsdóttur. Þar sem um ferðatímarit er að ræða er ennfremur í greininni getið til um nokkur áhugaverð hótel og spennandi veitingastaði. Myndin hér til hliðar er af upphafsblaðsíðu greinarinnar og hér má sjá greinina í heild sinni.
