Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Bláa bílvélin fær viðeigandi meðferð - síðari hluti á sunnudag kl. 14.00

5/6/2008

Listahátíð í Art Monthly

Fimmtudag 19. júní var komið að því að fremja gjörning Rogers Hiorns sem er hluti af Tilraunamaraþoni Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Koparsúlfatið, sem nota þarf til þess að fremja gjörninginn, komst í tæka tíð í Hafnarhúsið og var því boðað til tilraunar sem gestir geta fylgst með í fjóra daga. Tilraunin er gerð í nokkrum þrepum og fór fyrsti hluti hennar fram sl. fimmtudag. Klukkan 17.00 hófust tæknimenn í Hafnarhúsi handa við að blanda upplausnina sem vélin fór síðan í. Blandan getur reynst hættuleg við snertingu og þurftu þeir sem blanda hana að gæta sérstakrar varúðar. Koparsúlfatið þarf að leysast upp við ákveðið hitastig og sömuleiðis þarf að gæta vel að því að vélin sé sett í upplausnina á réttum tímapunkti. Þetta ferli tók nokkrar klukkustundir. Síðari hluti tilraunarinnar felst í því að taka vélina upp úr koparsúlfatslausninni og verður það gert að viðstöddum gestum sunnudaginn 22. júní kl. 14:00. Á meðfylgjandi mynd má sjá bláan segulkubb sem hlaut álíka meðferð hjá listamanninum Roger Hiorns á tilraunamaraþoni hans í Serpentine Gallery í London og verður spennandi að sjá hvort hin fremur lítilfjörlega bílvél muni skarta viðlíka glæsileika eftir meðferðina.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica