Esbjörn Svensson látinn
Þau sorgartíðindi bárust í morgun að sænski píanóleikarinn Esbjörn Svensson hafi farist við köfun í sænska Skerjagarðinum um helgina. Esbjörn, sem var aðeins 44 ára gamall, var einn fremsti jasspíanisti Evrópu, en hann kom hingað fyrir rétt rúmu ári síðan og lék á tvennum tónleikum með tríó sínu á Listahátíð. Tónleikarnir hlutu afar góða dóma og troðfullt var á báða tónleikana sem voru í Nasa. Esbjörn, sem er mikill áhugamaður um útivist, lýsti yfir sérstökum áhuga á að koma sem fyrst aftur til Íslands og kafa. Esbjörn dvaldist hér í nokkra daga eftir tónleikana og var einstaklega ánægjulegt að kynnast honum. Listahátíð hefur sent samúðarkveðjur til fjölskyldu hans og nánustu samstarfsmanna.
