Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Myndlistarsýningarnar opnar fram eftir sumri

11/6/2008

Listahátíð í Art Monthly

Allar þær myndlistarsýningar sem opnaðar voru á upphafsdögum Listahátíðar í Reykjavík frá 15. til 18. maí munu halda áfram þótt hátíðinni sé nú lokið. Sýningin Tilraunamaraþon í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi verður opin til 24. ágúst. Í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum heldur sýningin, Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist, áfram til 7. september sem og innsetning landslagsarkitektsins Mörthu Schwarz í bakgarði safnsins. List mót byggingarlist í Listasafni Íslands þar sem Finnbogi Pétursson, Monica Bonvicini, Elín Hansdóttir, Steina (Vasulka) og Franz West sýna stendur til 29. júní. Sýningin Endurkast, í Ljósmyndasafni Íslands, Þjóðminjasafninu verður opin til 31. ágúst. Sýning Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur, undir yfirskriftinni Óvissulögmálið, stendur til 22. júní. Í Galleríi i8 verður brasilíski listamaðurinn Ernesto Neto með einkasýningu til 28. júní. Í Listasafni ASÍ sýna þeir Halldór Ásgeirsson og Paul-Armand Gette; Hvaða eldfjöll? til 13. júní. Í Galleríi 100° verður sýningin Welcome, Samtímalist frá Króatíu, opin til 27. júní. Smart, sýning Andreu Maack í Galleríi Ágúst, varir til 28. júní. Sökkvun, sýning Rúríar í Start Art verður opin til 30. júní og einnig afmælissýning Nýlistasafnsins þar sem boðið er upp á yfirlit yfir íslenska gjörninga og sýningu sænska listamannsins Karls Holmqvist. Barnaljósmyndasýningin Fimm verður í Borgarleikhúsinu fram eftir sumri og sama verður að segja um útiljósmyndasýninguna; Dialog á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Sýningin á verkum Magnúsar Kjartanssonar í Listasafni Árnesinga stendur til 20. júlí og Þríviður, sýning Hannesar Lárussonar, Guðjóns Ketilssonar og Helga Hjaltalín í Listasafni Reykjanesbæjar verður til 15. ágúst. Þeir sem búa fyrir norðan eða eiga erindi norður geta litið augum Greinasafn Önnu Líndal, Bjarka Bragasonar og Hildigunnar Birgisdóttur í Safnasafninu á Svalbarðsströnd til 8. júlí. Sýningunni Facing China (Augliti til auglits við Kína) í Listasafninu á Akureyri lýkur 29. júní. Austfirska Ferðalaginu, sem er undir sýningarstjórn Björns Roth, lýkur á mismunandi tímum. Sýning Lennart Alves og Hrafnkels Sigurðssonar á Eiðum–listasetri lýkur 1. júlí og sýning þríeykisins Skyr Lee Bob, Péturs Kristjánssonar og Cristoph Büchel verður í Skaftfelli, miðstöð myndlistar á Austurlandi, til 22. júni en sýningunni í Sláturhúsinu á Egilsstöðum var rétt í þessu að ljúka.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica