Frábærar viðtökur á lokatónleikum Listahátíðar
Lokaviðburður Listahátíðar í Reykjavík, sem staðið hefur frá 15. maí, fór fram í Háskólabíói í gærkvöldi. Þar leiddu þau Barði Jóhannsson og Keren Ann Zeidel saman hesta sína ásamt Sínfóníuhljómsveit Íslands við vægast sagt frábærar viðtökur tónleikagesta sem fylltu bíóið. Ekki var síður gerður góður rómur að videó- og ljósahönnun Frank Esposito. Gestasöngvarar á tónleikunum voru Ester Talía Casey og Magnús Jónsson. Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar á tónleikunum var Daniel Kawka og hljómsveitarútsetningar annaðist Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Á tónleikunum voru ýmist flutt lög eftir Keren Ann eða Barða; lög með Lady&Bird og síðan lögðu Keren Ann og Barði hvort öðru lið í nokkrum lögum. Þess má geta að tónleikarnir voru í beinni útsendingu á Rás 1 og eru þeir nú aðgengilegir í tvær vikur á www.ruv.is
