Sigurbjörn Bernharðsson og Anna Guðný Guðmundsson heiðra Þorkel Sigurbjörnsson
Þorkell Sigurbjörnsson er eitt ástsælasta og áhrifamesta tónskáld okkar Íslendinga. Höfundarverk hans er einkar fjölbreytilegt og inniheldur fjölda hljómsveitarverka, einleikskonserta, kammerverka, mikið af raf- og tölvutónlist, einleiksverk, kammeróperur, sönglög og kórtónlist, en sálmalög Þorkels eru meðal þekktustu verka hans. Í ár fagnar Þorkell Sigurbjörnsson sjötugsafmæli sínu og í tilefni þess verða haldnir tónleikar honum til heiðurs í Íslensku óperunni í kvöld, miðvikudagskvöld 4. júní kl. 20.00. Efnisskrá tónleikanna verður sérlega falleg og inniheldur öll verka Þorkels fyrir einleiksfiðlu og fiðlu og píanó. Hljóðfæraleikarar eru þau Sigurbjörn Bernharðsson, fiðluleikari og frændi tónskáldsins, og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari. Athugið að greiddir miðar verða afhentir við innganginn klukkustund áður en tónleikarnir hefjast eða frá kl. 19.00 í Íslensku óperunni. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00. Nánari upplýsingar eftir lokun má fá í síma 898 9981 og / eða 699 6706. Seinni tónleikarnir að þessu tilefni verða í Laugarborg við Hrafnagil í Eyjafjarðarsveit, daginn eftir eða 5. júní kl. 20.30. Miðasala á þá fer fram í Laugarborg.
