Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Miklar frásagnir af Listahátíð í erlendum fjölmiðlum

23/6/2008

Miklar frásagnir af LHI erlendis

Miklar frásagnir hafa verið að birtast síðustu daga af opnunarhelgi Listahátíðar í Reykjavík í virtum erlendum dagblöðum og listatímaritum. En sem kunnugt er sóttu margir erlendir blaðamenn upphafsdaga hátíðarinnar. Meðal annars er að finna ítarlegar umfjallanir í hinum víðlesnu dagblöðum Boston Globe og Wall Street Journal og listatímaritunum Artnet, Artforum og Art- Das Kunstmagazine. Ben Davis blaðamaður á Arnet.com lýsir upplifun sinni af Listahátíð í Reykjavík sem „...lítilli gersemi í alþjóðlegu listahringekjunni“ og í Artforum er að finna grein undir heitinu Amazing Race en þar er fjallað um fyrstu daga hátíðarinnar, bæði í Reykjavík og úti á landi, í bland við fjölda mynda. Í Wall Street Journal er áhugavert samtal sýningarstjóra Tilraunamaraþonsins, Hans Ulrich Obrist og Ólafs Elíassonar, við blaðakonuna Cathryn Drake og þýski blaðamaðurinn Clemens Bomsdorf á listaritinu Art- Das Kunstmagazine fer innblásnum orðum um hátíðina. Hér að neðan má sjá nokkrar þeirra greina sem þegar hafa birst í erlendum fjölmiðlun. Von er á talsverðum skrifum til viðbótar og í aðdraganda hátíðarinnar var m.a. að finna greinar í New York Times og Modern Painters um að Listahátíð í Reykjavík væri í vændum: Wall Street Journal, European Weekend Edition, May 30, 2008 – Cathryn Drake: Interview with Hans Ulrich Obrist and Ólafur Elíasson about Experiment Marathon Reykjavik: http://online.wsj.com/article_email/SB121209568570130583-lMyQjAxMDI4MTMyMDAzOTA1Wj.html Artnet.com, May 23, 2008 – Ben Davis’;; coverage of the Festival: http://www.artnet.com/magazineus/reviews/davis/davis5-23-08.asp Artforum.com, May 25, 2008 – Cathryn Drake’;;s Scene and Heard column: http://www.artforum.com/diary/id=20273 The Boston Globe, May 25, 2008: Tom Haines’;; article and blog entry on the Festival: http://www.boston.com/travel/getaways/europe/articles/2008/05/25/creators_of_cool/?p1=Well_MostPop_Emailed7 http://www.boston.com/travel/getaways/europe/gallery/reykjavik_arts_festival/ http://www.boston.com/travel/blog/theme/tom_haines/ Art das Kunstmagazin (online), May 22, 2008: Clemens Bomsdorf’;;s coverage of the Festival: http://www.art-magazin.de/kunst/6578/reykjavík_arts_festival_island?p=1 TheWorld.org, May 16, 2008: Audio interview with Tom Haines about Experiment Marathon Reykjavik: http://www.theworld.org/?q=node/18089 Le Monde June 11: Emmanuelle Lequeux's article on the Festival: www.lemonde.fr/archives/article/2008/06/11/l-art-fait-son-marathon-a-reykjavik_1056735_0.html Artreview, May 17, James Westcott Diary, Days 1-4 www.artreview.com/profiles/blog/show?id=1474022%3ABlogPost%3A226418 Ljósmyndina tók Cathryn Drake.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica