Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Barði og Keren Ann með Sinfóníuhljómsveit Íslands

1/6/2008

Barði og Keren AnnNæsta fimmtudag, 5. júní munu Barði Jóhannsson og Keren Ann Zeidel leiða saman hesta sína og halda tónleika ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Dagskrá tónleikanna spannar feril þeirra beggja í nýjum sinfónískum útsetningum Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar. Saman munu þau svo stíga á svið sem dúettinn Lady & Bird sem margir Íslendingar þekkja eftir tónleika þeirra í Íslensku óperunni á Listahátíð í Reykjavík 2005, en fram til þessa hefur sá dúett aðeins komið fram á þrennum tónleikum og verið uppselt á þá alla. Barði og Keren Ann hafa starfað saman að ýmsum verkefnum síðustu árin. Þau hafa samið tónlist fyrir geisladiska hvor annars og einnig gefið sameiginlega út geisladiskinn Lady & Bird árið 2003 undir merkjum EMI/Capital Records. Þau sömdu tónlist fyrir heimildarmyndina Vie et morts de Andy Warhol og skrifuðu saman bókina Lady & Bird Recording Diary sem var aðeins gefin út í 1.000 eintökum og seldist upp nær samstundis. Þau sömdu einnig tónlist í eina stærstu auglýsingu Frakklands fyrir TGV hraðlestirnar. Bang Gang og Keren Ann hafa leikið á hljómleikum um allan heim, en þó aðeins einu sinni saman.

Barði Jóhannsson er Íslendingum að góðu kunnur, enda hefur hann komið víða við í tónlistarlífi landsins. Hann er forsprakki hljómsveitarinnar Bang Gang sem gaf út sína fyrstu plötu (You) árið 2000. Tveimur árum síðar gerði Barði samning við EMI Publishing France og gaf út plötuna Something Wrong í Evrópu, Japan, Suður-Kóreu og Ástralíu. Hljómsveitin hefur komið fram á fjöldamörgum tónleikum í Evrópu og víðar. Eitt af stærri verkefnum Barða var að semja tónlist við kvikmyndina Häxan frá 1922, og var tónlist hans frumflutt með kvikmyndinni árið 2004 í Forum des images í París. Árið 2005 flutti Sinfóníuhljómsveit Íslands þetta verk hér á landi. Auk þessa hefur Barði verið upptökustjóri og meðhöfundur margra af okkar þekktustu tónlistarmönnum og samið tónlist við íslenskar kvikmyndir. Hann hefur einnig unnið tónlist fyrir óperuhátíðina í Aix en Provence og tekið þátt í fjölmörgum verkefnum, m.a. fyrir Pompidou safnið í París og Getty Museum í Los Angeles. Tónlist Barða hefur verið notuð í fjölmargar erlendar auglýsingar, svo sem fyrir Armani, Yves Rocher, BBC, Lancia og Citroën, og heyrst í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á borð við The O.C. og The L Word.

Keren Ann er ein hæfileikaríkasta söngkona og lagahöfundur Frakka. Hún er fædd í Ísrael en alin að mestu upp í Hollandi og París. Hún hóf feril sinn sem tónlistarmaður 1998 og gaf út sinn fyrsta disk árið 2000, La Biographie de Luka Philipsen, en hann hlaut einkar góða dóma og kom mjög á óvart, enda var hún þá nær óþekkt. Á sama ári samdi hún, ásamt tónlistarmanninum Benjamin Biolay, tónlist á plötu tónlistarmannsins Henri Salvador, Chambre avec vue. Upp frá því fór ferill hennar á flug. Árið 2002 kom út önnur plata hennar, La Disparition. Keren Ann hefur hlotið sjö tilnefningar til frönsku tónlistarverðlaunanna, í ár var hún tilnefnd sem besta kvenlistamaður og fyrir bestu rokkplötuna. Árið 2004 kom Not Going Anywhere út. Ári síðar kom svo plata hennar Nolita út í Frakklandi og skömmu síðar í Bandaríkjunum, Kanada, Asíu og Bretlandi. Nýjasta plata hennar, Keren Ann, kom út í fyrra og hefur Keren fylgt henni eftir með tónleikum víða um heim. Keren Ann hefur, eins og Barði, samið fjölda laga fyrir erlendar auglýsingarog þekkta erlenda sjónvarpsþætti svo sem Six Feet Under, The L Word, Big Love og Grey's Anatomy. Sinfóníuhljómsveit Íslands var stofnuð árið 1950 og hefur á skömmum tíma náð miklum listrænum árangri. Geisladiskar hljómsveitarinnar, frá útgáfufyrirtækjum á borð við Chandos, BIS og Naxos, hafa fengið afar góða dóma á síðustu árum og hljómsveitin stenst fyllilega samanburð við bestu hljómsveitir erlendis.

Sinfóníuhljómsveitin er skipuð 82 fastráðnum hljóðfæraleikurum og hana má stækka í allt að 100 manns ef á þarf að halda. Hljómsveitin heldur um 60 tónleika á hverju starfsári, auk tónleikaferða innanlands og utan. Meðal þeirra hljómsveitarstjóra sem mestan þátt hafa átt í uppvexti Sinfóníuhljómsveitar Íslands má nefna Norðmanninn Olav Kielland, Pólverjann Bohdan Wodiczko, Norðmanninn Karsten Andersen, Frakkann Jean-Pierre Jacquillat og á síðari árum þá Petri Sakari og Osmo Vänskä frá Finnlandi. Núverandi aðalstjórnandi hljómsveitarinnar er hinn ungi Breti Rumon Gamba. Heiðursstjórnandi er Vladimir Ashkenazy. Stjórnandi á tónleikunum er Daniel Kawka. Nánari upplýsingar og miðasala fer fram á www.sinfonia.is Tónleikarnir eru í samstarfi við Sendiráð Frakklands.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica