Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Lokasýníng á Ömbru á sunnudagskvöld kl. 20.00

21/5/2008

Ambra

Á Listahátið í Reykjavík sameinuðust á föstudagskvöld við mikla ánægju áhorfenda tveir af helstu dansflokkum Norðurlanda í einu stórverkefni, Ambra. Það voru Íslenski dansflokkurinn og Carte Blanche frá Bergen, sem er fremsti nútímadansflokkur Noregs en aðeins þrjár sýningar á verkinu í Reykjavík. Sýning nr. 2 var á laugardag kl. 17.00. Sýningin á sunnudag 25. maí er kl. 20.00. Danshöfundurinn er Ina Christel Johannessen, en hún þykir einn mest spennandi danshöfundur Evrópu um þessar mundir. Íslensku tónlistarkonurnar Kira Kira og Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir semja tónlistina fyrir verkið ásamt þýskum samverkamanni sínum, Dirk Desselhaus. 21 dansari tekur þátt í sýningunni. Uppspretta hugmyndarinnar að sýningunni er bláhvalur sem rak á land á strönd Jan Mayen árið 2001. Beinagrind hans er á safni í Noregi og verður notuð í sýningunni. Höfundar vilja nota sögu hvalsins, þessa ótrúlega dýrs sem syndir um heimsins höf áratugum saman, virðist ætíð vita nákvæmlega hvert hann á að fara og gefur frá sér hljóð á „tungumáli” sem er einstakt og vísindamenn kappkosta enn að skilja. Sýningin er óður til hvalanna, framleidd af listafólki sem kemur frá löndum sem enn stunda hvalveiðar þrátt fyrir víðtæk mótmæli um heim allan. Verkið fjallar um samskipti þjóða á milli, einstaklinga, ferðir okkar, leyndardóma og þrár. Frá Reykjavík fer sýningin viku seinna á Listahátíðina í Bergen, þar sem verkið verður sýnt tvisvar í Grieghallen. Listahátíðirnar tvær eru meðframleiðendur verksins. Listrænir aðstandendur: Danshöfundur: Ina Christel Johannessen Frumsamin tónlist: Kira Kira, Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir, Dirk Desselhaus Aðstoðamaður danshöfundar: Cecilia Roos Leikmynd og búningar: graa hverdag AS / Kristin Torp Ljósahönnun: Kyrre Heldal Karlsen Hljóðhönnun: Morten Cranner Lengd: 70 mínútur

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica