Uppselt í kvöld, laugardagskvöld á Wayne Shorter kvartettinn
20/5/2008
Uppselt er á tónleika Wayne Shorter kvartettins sem verða í Háskólabíói í kvöld, laugardagskvöldið, 24. maí kl. 21.00. Á tónleikunum spilar Shorter með framúrskarandi tónlistarmönnum, þeim John Patitucci, bassaleikara; Danilo Perez, píanóleikara, og Brian Blade, trommuleikara. Wayne Shorter hefur alls níu sinnum hlotnast Grammy-verðlaunin. Wayne Shorter er afburðarsnjall hljóðfæraleikari og fremstur í flokki tenór- og sópransaxófónleikara samtímans, arftaka snillinga á borð við John Coltrane og Sonny Rollins. Hann er einnig framúrskarandi lagahöfundur og til vitnis um það eru lög eins og Speak No Evil, Infant Eyes, Witch Hunt, Penelope, Adam´s Apple, Footprints og aðrar margbrotnar tónsmíðar sem þegar eru orðnar að ódauðlegum djassstandördum. Einnig hefur afar góð miðasala verið á tónleika söngdívunnar Denyce Graves sem verður með einsöngstónleika í Háskólabíói 1. júní.
Senda grein