Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Eyjastökk Egils Sæbjörnssonar og Percusemble Berlin í kvöld, mánudagskvöld

16/5/2008

Inselhopping eða Eyjastökk, sem er samvinnuverkefni Egils Sæbjörnssonar og Percusemble Berlin, verður á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík í porti Hafnarhússins í kvöld. Miðasala á viðburðinn fer fram á vef Listahátíðar en einnig á midi.is en jafnframt verður miðasala við innganginn frá kl. 19.00. Percusemble Berlin bað átta tónskáld frá Írlandi, Berlín og Íslandi að skrifa fyrir sig ný verk árið 2007. Hugmyndin var að skapa umhverfi sem gæti endurskilgreint hinn hefðbundna ramma tónleikahalds og að reyna að færa áhorfendum eitthvað nýtt. Egill Sæbjörnsson vinnur með umhverfið sem tónleikarnir fara fram í og þar að auki með hreyfingar og athafnir tónlistarmannanna. Hinn sjónræni hluti tónleikanna er ekki hugsaður sem undirleikur, heldur er hlutverk hans að mynda sterkan og sjálfstæðan kontrapúnkt við verk höfundanna og skapa þar með nýja möguleika á túlkun. Á efnisskránni eru verk eftir Berlínartónskáldin Jeremy Woodruff og Helmut Zapf og íslensku tónskáldin Úlfar Haraldsson, Atla Heimi Sveinsson og Pál Ívan Pálsson. Í verkum Atla Heimis og Helmuts Zapf leikur Freyja Gunnlaugsdóttir einleik á klarínettu, en verk Atla var samið sérstaklega fyrir Freyju. Percusemble Berlin er alþjóðlega viðurkenndur slagverkshópur sem sérhæfir sig í flutningi nútímatónlistar. Hópurinn, sem samanstendur af Martin Krause, Bernd Vogel, Prof. Sanja Fister og Hjörleifi Jónssyni, var stofnaður árið 1997 og hefur verið áberandi í tónlistarlífi Berlínarbúa allt frá upphafi. Percusemble Berlin hefur á síðustu tíu árum byggt upp viðamikla efnisskrá, leikið á tónlistarhátíðum um allt Þýskaland (Expo 2000, Musika Viva, Unerhörte Musik, Intersonanzen, Musikbiennale o.s.frv), leikið með hljómsveitum á borð við SWR Orchester í Kaiserslautern og unnið með tónskáldum á borð við Karlheinz Stockhausen, Henrik Strindberg, Georg Katzer og Helmut Öhring, svo að fáir einir séu nefndir. Frekari upplýsingar um Percusemble Berlin er að finna á síðunni www.percusemble.de.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica