Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Sýningaropnanir í Hveragerði, Reykjanesbæ og Kjarvalsstöðum

16/5/2008

Listasafn Árnesinga opnar í dag, sunnudag kl. 18.00 sýningu á verkum á pappír sem Magnús Kjartansson (1949 – 2006) vann á tímabilinu 1982 - 1988. Sýningarstjóri er Jón Proppé, en verkin á sýningunni eru unnin með margs konar tækni, allt frá klippimyndum og málverkum til ljósmynda. Þau eru einnig heimild um tilraunir listamannsins með ýmis konar prentunartækni, þar sem hann varpaði með ljósmyndunartækni hlutum, myndum og jafnvel eigin líkama yfir á pappír. Fæst þessara verka hafa áður verið sýnd, þó að nokkur þeirra séu í safnaeign og einkasöfnum. Leitast verður við að tengja verk Magnúsar listsköpun samtímans, meðal annars með fyrirlestrum, gjörningum, myndbandskynningum og pallborðsumræðum þar sem þátt taka yngri listamenn, svo sem Ragnar Kjartansson. Í Listasafni Reykjanesbæjar verður sýningin Þríviður undir stjórn Aðalsteins Ingólfssonar, en þar verða sýnd verk þriggja íslenskra listamanna sem hafa notað trjávið í miklum mæli við gerð verka sinna: Hannesar Lárussonar, Guðjóns Ketilssonar og Helga Hjaltalín. Meðhöndlun listamannanna á þessum ævagamla efniviði er eins fjölbreytt og þeir eru margir, en áherslur þeirra bera þó keim af hugmyndalist og félagslega meðvitaðri myndlist síðari ára. Á sýningunni verður verkum þeirra - lágmyndum, gólfverkum og uppistandandi skúlptúrum - stillt upp þannig að þau kallist á og kveiki neista hvert af öðru. Um leið verður grennslast fyrir um hlutverk trjáviðar í íslenskri myndlist og tengslin við útskurðarlist fortíðar. Sýningaropnunin í Reykjanesbæ verður kl. 20.00. Fyrr um daginn eða kl. 16.00 opnar Í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum sýningin Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist, þemasýning þar sem kannaðar verða margs konar hugmyndir um náttúruna og náttúrufyrirbæri með ljósmyndum og myndbandalist. Á sýningunni verða bæði svart-hvítar landslagsljósmyndir frá þriðja og fjórða áratug 20. aldarinnar og margmiðlunarinnsetningar, og settar fram margar og mismundandi túlkanir og hugmyndir um „hið háleita” og „hið staðlausa”, í sígildum, þunglyndislegum, kaldhæðnislegum eða vistfræðilega róttækum myndum. Meðal þátttakenda eru Daníel Þorkell Magnússon, Halldór Ásgeirsson, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Gjörningaklúbburinn/Icelandic Love Corporation (Sigrún Hrólfsdóttir, Jóní Jónsdóttir og Eirún Sigurðardóttir), Ragnar Kjartansson, Ólafur Elíasson, Olga Bergmann og Anna Hallin, Pétur Thomsen, Sigurður Guðjónsson, Spessi og Vigfús Sigurgeirsson. Á sýningunni verður sett upp í fyrsta sinn á Íslandi eitt af höfuðverkum Kristjáns Guðmundssonar, Blá færsla frá 1988, en verkið var m.a. valið á Unlimited Art Basel 2007. Verkið er framleitt úr 5 pappírsrúllum sem hver og ein vegur rúmlega 600 kg. Þetta er mónúmental verk í bókstaflegum og óbókstaflegum skilningi. Kristján er einn af okkar merkilegustu listamönnum og uppsetningin á þessu mikla verki verður að teljast viðburður sem vert er að beina sjónum að. Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist var fyrr á þessu ári sett upp í Palais des Beaux-Arts í Brussel. Samhliða henni mun landslagsarkitektinn og listamaðurinn Martha Schwarz sýna verk í bakgarði safnsins en Schwarz hefur mestan áhuga á borgarverkefnum og því að kanna nýjar leiðir í hönnun landslags. Sýningarstjóri: Æsa Sigurjónsdóttir

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica