Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Metsala á viðburði Listahátíðar

6/12/2006

Miðasala á þrjá stórviðburði Listahátíðar í Reykjavík fór afar vel af stað og þegar dagur var að kveldi kominn var ljóst að met hafði verið slegið í miðasölu á viðburði Listahátíðar á einum degi. Eins og við mátti búast er mikill áhugi vegna komu San Francisco ballettsins, sem fjölmargir sáu síðast á Listahátíð árið 2000. Miðar seldust strax upp fyrsta daginn á frumsýningu og er sala miða langt komin á aðrar sýningar. Þá ætla margir augljóslega að nýta sér tvennutilboðið og hlýða á báða einsöngstónleika barítónanna Bryn Terfel og Dmitri Hvorostovsky í Háskólabíói í vor. Enn er þó hægt að fá miða á alla þessa viðburði enda sýningar San Francisco ballettsins alls sjö í Borgarleikhúsinu, dagana 16. til 20. maí og sem fyrr segir verða þeir Hvorostovsky og Terfel dag eftir dag í Háskólabíói, 20. og 21. maí, hvor með sína einsöngstónleikana. Miðasalan fer fram á vef hátíðarinnar www.listahatid.is og í síma 552-8588 alla virka daga milli kl. 10 og 16. Miðaverð á San Francisco ballettinn er kr. 4.800. Miðaverð á söngvara, einn miði kr. 5.900 / 6.400. Listahátíð í Reykjavík verður haldin dagana 10. til 26. maí 2007. Kynning á heildardagskrá hátíðarinnar verður í febrúar.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica