Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Miðasalan er hafin

4/12/2006

Forsala á þrjá af stærstu viðburðum Listahátíðar í Reykjavík 2007 hófst mánudaginn 4. desember. Viðburðirnir sem hér um ræðir eru sýningar San Francisco ballettsins undir stjórn Helga Tómassonar í Borgarleikhúsinu sem verða sjö talsins, dagana 16., 17., 18., 19 og 20. maí og einsöngstónleikar Dmitri Hvorostovsky 20. maí og Bryn Terfel 21. maí sem báðir verða í Háskólabíói. Er þetta í fyrsta sinn sem Listahátíð hefur miðasölu á völdum viðburðum í desember. San Francisco ballettinn þarf vart að kynna fyrir Íslendingum eftir komu hans hingað til lands á Listahátíð árið 2000. Nú, sjö árum síðar, hefur Helgi Tómasson sett saman sýningu sérstaklega fyrir Íslendinga sem byggir á ballettum sem hann hefur samið fyrir flokkinn. Er hér um að ræða mörg glæsilegustu verk Helga sem öll sýna afburðahæfni fremstu dansara hópsins. Frá því hópurinn heimsótti Ísland á Listahátíð árið 2000 hefur vegur hans vaxið mjög. Óhætt er að fullyrða að hópurinn stendur nú á hátindi frægðar sinnar og ferðin til Íslands markar að vissu leyti upphafið á 75 ára afmæli dansflokksins. Koma San Francisco ballettsins til Íslands er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Borgarleikhússins. Dmitri Hvorostovsky vann á sínum tíma Bryn Terfel í keppninni Cardiff BBC singer of the world árið 1989, en síðan hafa þeir verið taldir tveir fremstu barítónar heims. Á Listahátíð í Reykjavík gefst einstakt tækifæri til þess að hlýða á báða þessa stórsöngvara dag eftir dag 20. og 21. maí í Háskólabíói. Báðir búa þeir yfir óbrigðulu listfengi, þótt hvor um sig hafi mikla sérstöðu. T.d. þykir rödd Terfel óvenju blæbrigðarík á meðan rödd Hvorostovsky þykir flauelsmjúk og einstaklega hljómfögur. Fræg er tónleikaför Hvorostovsky um Rússland í boði Pútín forseta þegar hann söng fyrir mörg hundruð þúsund áhorfendur til minningar um rússneska hermenn sem börðust í seinni heimsstyrjöldinni. Þekktastur er hann fyrir hlutverk Onegin í óperu Tchaikovsky Eugene Onegin og er stundum talað um að það hlutverk sé eins og skapað fyrir hann. Það mun varla ofsögum sagt að Bryn Terfel sé einn dáðasti söngvari samtímans. Terfel hefur m.a. hlotið fádæma lof fyrir túlkun sína á kröfuhörðustu hlutverkum óperubókmenntanna. Má þar nefna Falstaff e. Verdi og Leporello og Don Giovanni í samnefndri óperu Mozart. Efnisskrár Terfel og Hvorostovsky eru gerólíkar. Sterk tengsl Hvorostovsky við heimaland sitt, Rússland, munu endurspeglast í efnisskrá tónleika hans á Listahátíð, en hún er helguð sönglögum eftir helstu meistara rússneska sönglagsins, m.a. Tchaikovsky, Mussorgsky, Glinka, Rachmaninoff og Borodin. Efnisskrá Bryn Terfel byggir á sönglögum frá Skotlandi og Írlandi og heimalandi Terfel, Wales. Miðasala á þessa þrjá viðburði á Listahátíð í Reykjavík 2007 hófst eins og áður sagði mánudaginn 4. desember. Fer hún fram á vef hátíðarinnar www.listahatid.is og í síma 552-8588 alla virka daga frá kl. 10 til 16. San Francisco ballettinn, sýningar til sölu hér á vefnum 16., 17., 18. maí kl. 20 og 19. maí kl. 14. San Francisco ballettinn, sýningar til sölu á vef Borgarleikhússins 19. maí kl. 20 og 20. maí kl. 14 og 20. Miðaverð á San Francisco ballettinn er 4.800 kr. Miðaverð á eina tónleika Terfel eða Hvorostovsky er 5.900 / 6.400 kr. Listahátíð í Reykjavík verður haldin dagana 10. til 26. maí 2007. Kynning á heildardagskrá hátíðarinnar verður í febrúar. Kaupa miða.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica