Lofsamlegur dómur um Föðurlandið
10/10/2006
Óperan Le pays – föðurlandið sem flutt var á Listahátíð í Reykjavík síðastliðið vor fékk góða dóma í september hefti hins þekkta franska tímarits Opera Magazine. Þar er Listahátíð þakkað fyrir það frumkvæði að setja óperuna upp á ný en hún hafði ekki verið sett á svið í fjölda ára fyrir síðasta vor. Sinfóníuhljómsveit Íslands er lofuð í hástert fyrir framúrskarandi frammistöðu og söngvararnir fá einnig lof fyrir sitt. Í heild sinni er höfundur greinarinnar ánægður með uppfærsluna á óperunni og ferð sína til Íslands. Hér má sjá þýðingu greinarinnar í heild sinni.
Senda grein