Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Umsóknarfrestur rann út 13. nóvember

11/10/2006

Auglýst var nýverið eftir umsóknum um Eyrarrósina 2007 í dagblöðum, en eins og kunnugt er standa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands saman að Eyrarrósinni, viðurkenningu sem veitt er árlega einu afburða menningarverkefni á landsbyggðinni. Fyrstu Eyrarrósina, sem afhent var árið 2005, hlaut Þjóðlagahátíðin á Siglufirði og Eyrarrósina 2006 hlaut LungA, listahátíð ungs fólks, Austurlandi. Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni úr hópi umsækjenda. Vinningshafinn hlýtur kr. 1.500.000 og verðlaunagrip til eignar. Hin tvö fá 200 þúsund króna framlag, sem eru eftirstöðvar af Menningarborgarsjóði. Öll verkefnin hljóta að auki tíu flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Umsóknarfrestur rann út 13. nóvember sl. og verður öllum umsóknum svarað. Eyrarrósin verður afhent á Bessastöðum í ársbyrjun 2007. Auglýsing um Eyrarrósina 2007.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica