Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Stjórnarskipti á fulltrúaráðsfundi

4/10/2006

Á fulltrúaráðsfundi Listahátíðar sem fram fór 4. október voru fluttar skýrslur fráfarandi formanns, Halldórs Guðmundssonar og Þórunnar Sigurðardóttur listræns stjórnanda, einnig gerði Hrefna Haraldsdóttir framkvæmdastjóri grein fyrir ársreikningi 2005, 9 mánaða upppgjöri 2006 og rekstraráætlun 2007. Á fundinum fóru jafnframt fram stjórnarskipti, nýr formaður stjórnar er Ingimundur Sigfússon, fulltrúi menntamálaráðherra, varaformaður er Inga Jóna Þórðardóttir, fulltrúi borgarstjóra. Margrét Bóasdóttir var kosin fulltrúi fulltrúaráðsins í stjórn. Annar í framboði var Kristján Steingrímur Jónsson, hlaut hann 5 atkvæði, en Margrét 11 atkvæði. Nýr formaður fulltrúaráðs er menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og varaformaður fulltrúaráðsins er borgarstjórinn í Reykjavík, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Hér má lesa samantekt listræns stjórnanda, Þórunnar Sigurðardóttur, í tilefni af því að nú hefur Listahátíð verið haldin í tuttugu skipti.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica