Fundur fulltrúaráðs Listahátíðar
4/10/2006
Fulltrúaráðsfundur Listahátíðar verður haldinn 4. október kl 12.15 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Stjórnarskipti fara fram á fundinum, en stjórn Listahátíðar er skipuð til tveggja ára í senn. Fráfarandi fulltrúi borgarstjóra, Halldór Guðmundsson er núverandi formaður stjórnar, og hefur setið í stjórn frá árinu 2000. Varaformaður stjórnar er Ingimundur Sigfússon og tekur hann við formennskunni á fundinum af Halldóri. Nýr fulltrúi borgarstjóra, Inga Jóna Þórðardóttir verður nýr fulltrúi borgarstjóra í stjórn. Karólína Eiríksdóttir er núverandi fulltrúi fulltrúaráðs í stjórn, en á fundinum verður kjörinn nýr fulltrúi í hennar stað. Við formennsku í fulltrúaráðinu tekur menntamálaráðherra af borgarstjóra, en þau gegna formennsku í ráðinu til skiptis tvö ár í senn. Hér má lesa samantekt listræns stjórnanda, Þórunnar Sigurðardóttur, í tilefni af því að nú hefur Listahátið verið haldin í tuttugu skipti.
Senda grein