Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Stjórnarfundur Listahátíðar á Þingeyrum

1/9/2006

Nýlega var haldinn stjórnarfundur í stjórn Listahátíðar í Reykjavík og fór fundurinn fram að þessu sinni í sumarhúsi varaformanns stjórnar á Þingeyrum. Gestur fundarins var Inga Jóna Þórðardóttir, en hún er verðandi fulltrúi borgarstjóra í stjórn Listahátíðar. Á fundinum var m.a. rætt um stefnumörkun Listahátíðar, farið yfir starfsemi og fjármál, hlutverk stjórnar og væntanlegar skipulagsbreytingar, sem áætlað er að taki gildi árið 2008. Stjórnarskipti verða á fulltrúaráðsfundi Listahátíðar í haust, en stjórn er skipuð til tveggja ára í senn. Fráfarandi fulltrúi borgarstjóra, Halldór Guðmundsson er núverandi formaður stjórnar, og hefur setið í stjórn frá árinu 2000. Varaformaður stjórnar er Ingimundur Sigfússon og tekur hann við formennskunni í haust af Halldóri. Karólína Eiríksdóttir er fulltrúi fulltrúaráðs í stjórn. Auk framangreindra sátu einnig fundinn á Þingeyrum stjórnandi Listahátíðar, Þórunn Sigurðardóttir og framkvæmdastjóri, Hrefna Haraldsdóttir. Á fulltrúaráðsfundinum í haust tekur menntamálaráðherra við formennsku í fulltrúaráðinu af borgarstjóra, en þau gegna formennsku í ráðinu til skiptis tvö ár í senn.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica