Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Grupo Corpo fengu fjölda bréfa frá íslenskum aðdáendum

15/6/2006

Svo virðist sem hinn einstaki brasilíski danshópur Grupo Corpo, sem sýndi í þrígang danssýningarnar Lecuona / Onqotô í Borgarleikhúsinu dagana 12. 13. og 14. maí, hafi haft mikil áhrif á þá fjölmörgu Íslendinga sem sáu þá á Listahátíð. Til marks um það eru ótal þakkarbréf sem bárust dansflokknum í kjölfar heimsóknarinnar til Íslands. Í bréfi frá Cláudiu Riberio, framkvæmdastjóra Grupo Corpo til Listahátíðar, þar sem hún m.a. þakkar fyrir hönd flokksins fyrir það einstaka tækifæri að hafa fengið að koma til Íslands og vonast til þess að Grupo Corpo fái tækifæri til að koma aftur, segir hún jafnframt frá því að margir afar vinsamlegir tölvupóstar hafi borist dansflokknum. Sem dæmi um það nefndi hún ungan íslenskan mann sem segir komu Grupo Corpo á Listahátíð hafi bókstaflega breytt lífi hans. Hann orðar það svo: “Eftir að hafa séð Grupo Corpo fór hjarta mitt að slá fyrir alvöru í fyrsta sinn. Ég hef mikinn áhuga á dansleikhúsi og er það ástæðan fyrir því að ég fór á sýninguna. Ég trúði ekki eigin augum þar sem ég sat þarna og horfði. Sýningin hafði svo mikil áhrif á mig að ég grét af gleði, ég grét vegna þess að ég sá þarna eitthvað á sviðinu sem ég get ekki útskýrt, ég grét vegna fegurðarinnar og ég grét vegna undurfagrar tónlistar. Að sjá þarna 22 dansara á sviðinu í svona miklum tengslum við líkama sína var ólýsanlegt, handan fegurðarinnar. Ég mun aldrei gleyma þessari sýningu og hún mun án efa hafa áhrif á framtíð mína. Ég hneigi mig fyrir fegurð ykkar og þokka. Takk enn og aftur fyrir að hafa breytt lífi mínu til frambúðar. Með virðingu og vinsemd!”

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica