Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Vel lukkaðri Listahátíð lokið

9/6/2006

Listahátíð í Reykjavík 2006, sem stóð frá 12. maí, lauk sl. föstudagskvöld 2. júní með frumsýningu á Galdraskyttunni í Þjóðleikhúsinu og síðari tónleikum sænska djasspíanistans Anders Widmark í Nasa, en þeir fyrri fóru fram á fimmtudagskvöld. Mikil stemmning ríkti á báðum tónleikum Anders Widmark og klappað og blístrað var í lok þeirra. Uppselt var bæði kvöldin. Hátíðin hófst með setningu í Borgarleikhúsinu 12. maí. Þar vöktu brasilíski dansflokkurinn Grupo Corpo og pólska harmónikkubandið Motion Trio strax mikla athygli. Mikil aðsókn var á allar þrjár sýningar Grupo Corpo í Borgarleikhúsinu og áttu fæstir orð til að lýsa hrifningu sinni á þeim hópi. Það sama má segja um snillingana Motion Trio, sem líkt og Anders Widmark, héldu tvenna tónleika í Nasa fyrir troðfullu húsi. Landnámsetur Íslands í Borgarnesi og Landnámssýningin 871 +/- 2 í Aðalstræti fóru afskaplega vel af stað sem og fjölmargar myndlistarsýningar meðan á hátíðinni stóð. A Prairie Home Companion – bandaríski útvarpsþátturinn var tekinn upp á Listahátíð og sendur út nokkrum dögum síðar til milljóna manna um allan heim. Var sú heimsókn mörgum afar kærkomin. Á hinn bóginn vakti flutningur Caput hópsins á Tárum Díónýsusar nokkuð umtal og var umdeildur, sérstaklega sökum erótískra myndbrota frá fyrri hluta síðustu aldar sem varpað var á tjald samhliða flutningnum. Sagt var um búlgarska kvennakórinn Angelite, sem hélt tvenna tónleika í Hallgrímskirkju, að hann gæti grætt stein og Afríkudrottningin Miriam Makeba söng líkt og engill og dansaði eins og unglingur fyrir sneisafullri Laugardalshöll. Þótti mörgum sem þar væri um hápunkt hátíðarinnar að ræða. Aðrir voru á öðru máli og töldu að franska óperan Le Pays ætti þann sess en sú ópera, sem gerist á Íslandi, var flutt í fyrsta sinn í nærri 100 ár við mikinn fönguð viðstaddra í porti Hafnarhússins. En áður en Le Pays fór á fjalirnar hafði verið gerður sérlega góður rómur að Mozart tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur og þriggja framúrskarandi einleikara og einnig Nino Rota tónleikum Kammersveitar Hafnarfjarðar. Bretarnir í sönghópnum I Fagiolini þóttu hvort sem er skemmtilegir í Reykjavík og á Eskifirði. Einnig náði Sköpunin eftir Haydn, sem flutt var samhliða heimsókn breska hópsins austur, hæstu hæðum. Þá má ekki gleyma þrennum afar glæsilegum miðnæturtónleikum í Iðnó, Schumann píanótónleikaröðinni í Ými, Danshátíðinni á Listahátíð ásamt leiksýningunum Mr. Skallgrímssyni í Borgarnesi og Umbreytingu –ljóði á hreyfingu í Þjóðleikhúsinu sem báðar fengu frábærar viðtökur. Verður Mr. Skallagrímsson sýndur áfram í allt sumar (sjá nánar á landnam.is) og þráður Umbreytingar verður tekinn upp í haust á ný í Þjóðleikhúsinu. Áður en yfir lauk tróðu Mugison og hljómsveit upp við klapp, stapp, flaut og blístur í Austurbæ og samskonar undirtektir fengu Rússíbanarnir og Kolbeinn Ketilsson í Íslensku óperunni, svo fátt eitt sé nefnt. Annars var aðsókn á þessa 20. Listahátíð í Reykjavík með besta móti. Uppselt var á fjölmarga viðburði og afar góður rómur var gerður að hátíðinni í heild. Helst til vitnis um það eru fjölmargir ánægðir gestir og afar jákvæðar umsagnir fjölmiðla. Gert er ráð fyrir að Listahátíð í Reykjavík 2007 hefjist 10. maí. Við leyfum ykkur að fylgjast betur með því sem um verður að vera á næstu hátíð þegar nær dregur. Með bestu kveðjum og ósk um gleðilegt sumar. Starfsfólk Listhátíðar í Reykjavík

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica