Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Skyn(sam)leg rými – ráðstefna Háskóla Íslands

28/5/2006

Ráðstefna Háskóla Íslands, Skyn(sam)leg rými, sem er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 1. og 2. júní, tekur fyrir hugmyndir um rýmið og hvernig það er skynjað og upplifað bæði í borg og byggð sem og í náttúru. Markmið viðburðarins er að skapa samræðuvettvang fyrir ólíka hópa háskólafólks, frá raun- og náttúruvísindum til félags- og hugvísinda, og lista- og athafnafólks. Rýmið umhverfis okkur er í stöðugri endurskilgreiningu í orðum og verkum, sem oftar en ekki styðjast við hugmyndir um það sem er skyn(sam)legt. Það er þá jafnan þröngt skilgreint af hópum með ákveðna hugsjón eða markmið að leiðarljósi, eða sem eiga beinna fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Þessar syn(sam)legu hugmyndir ýta oft til hliðar hinu “skynlega”- því sem fólk skynjar gegnum líkamann og öll skynfæri sín þar og þá. Ráðstefnan og listsýning samhliða fjalla um að laða fram hið skynjaða eða skynlega, sem byggir á upplifun, andstætt fyrir fram skilgreindum hugsjónum og markmiðum sem byggja á ýmsum hugmyndum um hið skyn(sam)lega. Mælendur á ráðstefnunni verða um 70 en á við opnun hennar munu tala: Doreen Massey prófessor í landafræði við Opna Háskólann í Bretlandi, Gísli Pálsson mannfræðingur, Charles Jencks arkitekt og sagnfræðingur, Gunnar J. Árnason listheimspekingur og kennari við Listaháskóla Íslands, Chris Drury umhverfis-listamaður. Listsýningin verður sýning Bryndísar Snæbjörnsdóttur í Öskju sem nefnist “Nanoq-flat out and bluesome”, sem og verk um 20 annarra listamanna sem munu halda tveggja daga samsýningu í Öskju: Fyrri hluti ráðstefnu fer fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi í dag, 1. júní og hefst kl. 10.00. Seinni hluti verður í Öskju, Náttúrufræðahúsi HÍ og hefst kl. 09.00. Skráning og frekari upplýsingar sparten.hi.is.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica