Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Óperan Galdraskyttan frumsýnd

30/5/2006

Þetta frábæra, klassíska verk verður flutt í fyrsta skipti á Íslandi af Sumaróperunni með mörgum af efnilegustu söngvurum yngri kynslóðarinnar, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og óperukór unga fólksins ásamt félögum úr karlakórnum Fóstbræðrum. Sumaróperan hefur nú undanfarin fjögur ár sett upp óperusýningar á sumrin sem vakið hafa mikla athygli. Stefnan var að standa að æ stærri og metnaðarfyllri sýningum og nær það hámarki með sýningu á Galdraskyttunni eftir Carl Maria von Weber á stóra sviði Þjóðleikhússins á Listahátíð. Óhætt er að fullyrða að þetta verði ein viðamesta óperuuppsetning sem farið hefur á svið hérlendis, með átta einsöngvara, 3 dansara, fimmtíu manna kór og fimmtíu til sextíu manna hljómsveit. Kolbeinn Ketilsson, einn af helstu söngvurum Íslendinga á erlendri grund, er gestasöngvari sýningarinnar. Aðrir söngvarar eru Hlín Pétursdóttir, Valgerður Guðnadóttir, Hrólfur Sæmundsson, Elísa Vilbergsdóttir, Guðmundur Jónsson, Herbjörn Þórðarson, Hafsteinn Þórólfsson og Stefán Arngrímsson. Hljómsveitarstjóri: Gunnsteinn Ólafsson. Leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson. Leikmynda- og búningahönnuður: Agnes Treplin. Danshöfundur: Irma Gunnarsdóttir. Ljósahönnuður: Jón Þorgeir Kristjánsson. Galdraskyttan er samstarfsverkefni Sumaróperunnar við Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Dansleikhúsið. Miðasala er hjá miðasölu Þjóðleikhússins, s. 551 1200

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica