Anders Widmark í Nasa í kvöld - örfá sæti laus
30/5/2006
Einn albesti djasspíanisti samtímans, Anders Widmark, verður í fararbroddi óvenjulegs djasstríós sem heldur tvenna tónleika á Listahátíð þar sem flutt verður m.a. margrómuð djassútgáfa hans af tónlistinni úr óperunni Carmen eftir Georges Bizet. Síðari tónleikar hans verið í Nasa við Austurvöll í kvöld, kl. 21.00. Uppselt var á fyrri tónleikana í gær og mikil stemmning en örfá sæti eru laus í kvöld. Með Anders Widmark í tríóinu eru þeir Mattias Welin á bassa og Jesper Kviberg á trommur. Anders Widmark er fæddur í Uppsölum í Svíþjóð árið 1963. Aðeins 7 ára gamall lék hann af fingrum fram og samdi lög á píanó. Eftir nám við Konunglega sænska tónlistarskólann og Tónlistarháskólann í Stokkhólmi 1986 hóf hann feril sinn sem djasspíanisti. Fjórum árum síðar hafði hann þegar markað sér sess í sænskri tónlistarsögu og er hans nú getið í helstu alfræðiritum fyrir að hafa verið í hópi þeirra fyrstu til þess að brjóta niður múrana á milli djass, hip-hops og annarra tónlistarhefða. Hann hefur haldið tilraunastarfsemi sinni áfram og þótt takast einkar vel upp, en hann þykir líka afbragðs útsetjari og lagasmiður. Widmark hlaut til að mynda hin virtu sænsku “Grammis” árið 2003 fyrir djasslag ársins ásamt söngkonunni Helenu Sjöholm. Hann hefur nú sent frá sér sjö ólíka geisladiska sem hver um sig hefur fengið mikið lof, jafnt í heimalandi hans sem og víða um heim, einkum þó í Evrópu og Ameríku. Sérstaka athygli hefur vakið áðurnefnd djassútgáfa hans af hinni heillandi tónlist úr óperunni Carmen. Sá geisladiskur hefur fært honum mikið lof og er að margra mati talinn einn albesti djasstónlistardiskur sem komið hefur út á Norðurlöndum í seinni tíð. Í kjölfarið fylgdi tónleikaferð sem fékk ekki síðri viðtökur en diskurinn.
Senda grein