Síðustu Schumanntónleikarnir kl. 11.00 í dag sunnudag
23/5/2006
Í dag, sunnudag kl. 11.00 verður þriðji og síðasti hluti Sunnudagsmorgna með Schumann. Flytjandi er Kristín Jónína Taylor og á efnisskrá eru Fantasía í C dúr ópus 17, Kreisleriana ópus 16. Umsjón: Halldór Hauksson Auk píanóverka Schumanns verður tónleikagestum boðið að skyggnast inn í hugarheim tónskáldsins og eiginkonu hans, píanósnillingsins Clöru Wieck Schumanns. Samband þeirra er ein af fallegustu ástarsögum tónlistarsögunnar sem verður rakin á tónleikunum í gegnum dagbókarfærslur og bréf þeirra hjóna.
Senda grein