Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Aðstandendur Le Pays hylltir lengi í lok sýningar

31/5/2006

Óperan Le Pays var flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands og þremur af ástsælustu söngvurum landsins, þeim Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Bergþóri Pálssyni og Gunnari Guðbjörnssyni í porti Hafnarhússins í gærkvöld og var þetta í fyrsta sinn sem Sinfóníuhljómsveit Íslands lék á þessum sérstaka tónleikastað. Flutningurinn þótti takast ákaflega vel og voru aðstandendur lengi hylltir í lokin. Þess má geta að fjölmargir Frakkar voru viðstaddir frumsýninguna og höfðu þeir margir á orði að þeim hefði mikið þótt til þess koma að sjá þessa fallegu og dramatísku frönsku óperu flutta í fyrsta sinn í heiminum í nær 100 ár, og það á Íslandi. Seinni sýning á Le Pays fer fram í dag og eru nokkur sæti enn laus á þá sýningu. Miðasala við innganginn hefst klukkustunda fyrir sýningu í Hafnarhúsinu. Óperan tekur um eina og hálfa klukkustund í flutningi. Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky, leikstjóri er Stefán Baldursson og dansari Lára Stefánsdóttir. Um útlit og búninga sér Filippía Elísdóttir. Le Pays er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica