Mugison og hljómsveit í Austurbæ í kvöld sunnudagskvöld
25/5/2006
Hinn fjölhæfi tónlistarmaður Örn Elías Guðmundsson, þekktur sem Mugison, er einhver skærasta stjarna í íslensku tónlistarlífi í dag. Tilgerðarlaus einlægni hans hefur sannarlega hitt í mark. Á Listahátíð kynnir Mugison nýja tónlist í nýjum búningi því nú kemur hann fram með fullskipaðri hljómsveit en ekki bara við annan mann eða einn eins og hingað til. Tónleikarnir með honum verða í Austurbæ í kvöld sunnudagskvöld og hefjast þeir kl. 21.00. Örn Elías Guðmundsson fékk viðurnefnið Mugison í Malasíu er hann kom þangað sem barn að heimsækja Guðmund föður sinn sem innfæddir kölluðu Mugi. Strákinn kölluðu þeir strax Mugison. Mugison dvaldi ekki bara í Malasíu heldur bjó hann með fjölskyldunni um tíma á Grænhöfðaeyjum áður en hann settist að í Reykjavík. Mugison byrjaði að spila í hljómsveitum en hélt síðan til náms í upptökufræðum í Lundúnum. Þar fór hann að taka upp lög á gamla Macintosh tölvu. Matthew Herbert, tónlistarmaður og plötuútgefandi, heyrði prufuupptökur og vildi endilega gefa út plötu með Mugison. Áður en af því gat orðið hélt Mugison heim til Íslands í jólafrí fyrir jólin 2002 og notaði fríið til að gefa plötuna út hér heima. Platan, Lonely Mountain, var gefin út í 300 eintökum í pappaumslögum sem Mugison saumaði saman sjálfur í saumvél sem hann fékk að láni. Lonely Mountain kom út um allan heim snemma árs 2003 og enn saumaði Mugison, nú voru fyrstu 10.000 eintökin saumuð og síðan 3.000 eintök til. Allur þessi saumaskapur fór fram fyrir vestan, en Mugison bjó þá hjá föður sínum á Ísafirði. Ýmsir komu að verkinu, þar á meðal stúlka frá Súðavík, Rúna Esradóttir, sem varð síðan kona Mugsons, Mugimama, og hefur unnið talsvert að tónlist með honum síðan, samið lög og sungið inn á plötu og á tónleikum. Mugison og Mugimama fluttust suður til Reykjavíkur en héldu sterkum tengslum vestur og Mugison gekkst fyrir tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem haldin var á Ísafirði um páskana 2004 og 2005 og aftur 2006. Mugison samdi tónlist fyrir kvikmyndina Niceland eftir Friðrik Þór Friðriksson veturinn 2003-2004, en tónlistin var hljóðrituð að mestu í Súðavíkurkirkju. Hún kom út á plötu, undir heiti myndarinnar, haustið 2004. Stuttu síðan kom út önnur breiðskífa Mugison; Mugimana, Is This Monkey Music? Hann samdi einnig tónlistina við kvikmynd Baltasars Kormáks, A Little Trip to Heaven, sem kom út á síðasta ári. Undanfarið hefur Mugison unnið að nýrri tónlist en einnig komið fram á stöku tónleikum, meðal annars með Hjálmum, en lagið Ljósvíkingurinn sem hann gerði með þeim hefur notið hylli undanfarið. Á Listahátíð kynnir Mugison síðan nýja tónlist í nýjum búningi því nú kemur hann fram með fullskipaðri hljómsveit en ekki bara við annan mann eða einn eins og hingað til. Árni Matthíasson Auk Mugisons skipa hljómsveitina Arnar Gíslason á trommur, Guðni Finnsson á bassa og Birgir Birgisson sem sér um hljóð.
Senda grein