Seinni sýning á Le Pays á laugardag
24/5/2006
Franska óperan Le Pays/Föðurlandið eftir franska tónskáldið Joseph-Guy Ropartz verður frumflutt í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands í porti Hafnhússins á föstudagskvöld , 26. maí kl. 20.00. Uppselt er á þá sýningu. Seinni sýningin verður daginn eftir kl. 16.00. Athugið að aðeins verður um þessar tvær sýningar að ræða. Af því tilefni var efnt til blaðamannafundar í Hafnahúsinu, þriðjudaginn 23. maí, kl. 11.00. Viðstaddir voru söngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir, Bergþór Pálsson og Gunnar Guðbjörnsson sem öll eru í burðarhlutverkum í óperunni. Auk þeirra tók þátt í fundinum Stefán Baldursson, leikstjóri Le Pays. Þess má geta að Le Pays er eina ópera tónbókmenntanna sem gerist á Íslandi og samin af erlendu tónskáldi. Í tilefni frumflutnings óperunnar var undirritaður samstarfsamningur Alfesca og Listahátíðar. Þau Jakob Sigurðsson, forstjóri Alfesca, og Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, undirituðu samninginn. Alfesca er alþjóðlegt matvælafyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi en stærstan hluta starfsemi sinnar í Frakklandi. Óperan Le Pays tengir Frakkland og Ísland saman á áhugaverðan hátt og vill Alfesca hnykkja á þeirri tengingu með stuðningi sínum. Alfesca hefur auk þess boðið frönskunemum við Háskóla Íslands og hjá Alliance Francais að sjá sýninguna. Nánar um óperuna Le Pays Ropartz skrifaði óperuna Le Pays í byrjun 20. aldar. Óperan fjallar um franskan sjómann sem lifir af sjóslys úti fyrir ströndum landsins og verður ástfanginn af íslenskri stúlku. Efni óperunnar er byggt á sönnum atburðum sem áttu sér stað við strendur Íslands árið 1873. Þetta er fyrsti flutningur óperunnar í tæp hundrað ár en hún var frumsýnd í Nancy í Frakklandi árið 1912 og ári síðar í l’;Opéra-Comique í París. Óperan er flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands og þremur af ástsælustu söngvurum landsins, þeim Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Bergþóri Pálssyni og Gunnari Guðbjörnssyni. Óperan verður flutt í porti Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhúsi en þetta er í fyrsta sinn sem Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur á þessum sérstaka tónleikastað. Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky, leikstjóri er Stefán Baldursson og dansari Lára Stefánsdóttir. Um útlit og búninga sér Filippía Elísdóttir. Le Pays er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Senda grein