I Fagiolini í Íslensku óperunni í kvöld og á morgun
23/5/2006
I Fagolini er þekkt um víða veröld sem ein framsæknasta söngsveit Englendinga sem sérhæfir sig í tónlist frá endurreisnartímanum. Þau hafa hlotið gríðarlega góðar viðtökur á meðal tónlistarsérfræðinga og ungra áhorfenda fyrir sviðsetningar sínar á tónlistar- og leikhúsverkum frá endurreisnar- og barokktímanum sem og framúrskarandi flutning á nútímatónlist. Fyrir fáeinum dögum hlaut I Fagiolini hópurinn tónlistarverðlaun hins Konunglega breska tónlistarfélags í flokknum “Tónlistarhópar” en hópurinn fagnar nú 20 ára starfsafmæli sínu. Verðlaunin sem veitt eru árlega eru virtustu tónlistarverðlaun Bretlands og eru veitt fyrir framúrskarandi lifandi tónlistarflutning þar sem fara saman, sköpunarkraftur, yfirburðir og skilningur á viðfangsefninu. Verðlaunin hafa aðeins einu sinni áður verið veitt sönghópi en þetta er í fyrsta sinn sem hópur sem sérhæfir sig í flutningi endurreisnartónlistar hlýtur verðlaunin. Umsögn dómnefndar var eftirfarandi: I Fagiolini er hópur tónlistar – leikara sem, undir röggsamri stjórn Roberts Hollingworth hefur miðlað á nýjan og hugmyndaríkan hátt tónlist sem hefur lengi átt undir högg að sækja.Sýningar hópsins eru ávallt vel ígrundaðar en á sama tíma sjálfsprottnar og lifandi. I Fagiolini flytur okkur á þessari Listahátíð gleðileikinn L’;Amfiparnaso eftir ítalska tónskáldið Orazio Vecchi (1550 – 1605). Í þessu stórskemmtilega tónverki frá árinu 1594 blandar Vecchi saman madrigölum og commedia dell´arte persónum í formi sem á sínum tíma var eins konar undanfari óperunnar. Þetta form, sem kallaðist “madrigala–gleðileikur”, átti blómaskeið sitt á seinni hluta 16. aldar, en vandamálið var oft að gæði tónlistarinnar voru ekki í samræmi við leikinn sjálfan og söguþráðinn. Þessu vildi Vecchi breyta með verkinu L´Amfiparnaso, en titill þess vísar til tveggja tinda hins gríska skáldafjalls Parnassos. Í verkinu haldast þessi tvö frumatriði formsins, söngur og leikur, í hendur sem jafningjar og má geta sér þess til að þar sé komin skýringin á því hvers vegna L´Amfiparnaso hefur staðiðst tímans tönn. Eins og oft vill verða í Commedia dell’; arte leikjum er söguþráðurinn einfaldur og hverfist um óhamingjusamt par, ráðagóða svikahrappa og ósvífið þjónustufólk. Grímubúnir leikarar túlka söguna með látbragði og tónlistin er sungin á ítalskri mállýsku frá Toscana-héraði og Feneyjum. Hvert atriði er svo kynnt með stuttum og skemmtilegum formála sem Davíð Þór Jónsson hefur þýtt á íslensku. Sögumaður er Hilmir Snær Guðnason. Gleðileikurinn var fluttur á fimmtudag kl. 20.00 og verður svo aftur í dag kl.17.00 í Íslensku óperunni. Seinni tónleikadagskrá hópsins samanstendur af verkum ítalska endurreisnartónskáldsins Claudio Monteverdi og sem hlotið hefur frábæra dóma í enskum dagblöðum. Dagskráin nefnist Flaming Heart eða Brennandi hjarta og skilur engan eftir ósnortinn. Þessi dagskrá er sett saman úr mörgum af glæsilegustu verkum Monteverdis, með bæði fjölradda söng án undirleiks og dúettum, madrigölum og tríóum. Þessi dagskrá sameinar margs konar verk og sýnir vel hvernig þau vega hvert annað upp og eru í raun dæmi um sömu hugmyndafræði – að hreyfa við áheyrandanum. Í samstarfi við Íslensku óperuna. Tónlistarstjóri: Robert Hollingworth. Fyrri tónleikarnir verða í Kirkju og menningarmiðstöðinni, Eskifirði 27. maí kl. 16.00 og þeir síðari í Íslensku óperunni 28. maí kl.17.00.
Senda grein