Rússíbanar og Kolbeinn Ketilsson í Íslensku óperunni
20/5/2006
Hljómsveitin Rússíbanar og tenórinn Kolbeinn Ketilsson efna til fjörlegra tónleika í Íslensku óperunni í kvöld, þriðjudagskvöld 23. maí kl. 20.00. Rússíbanarnir voru stofnaðir árið 1996 og sló hljómsveitin strax rækilega í gegn með líflegum flutningi á tónlist hvaðanæva úr heiminum, einkum tónlist Mið-Austurlanda og Austur-Evrópu. Efnisskrá tónleikanna í Íslensku óperunni er fjölbreytt og tónlistin kemur úr ólíkum áttum; auk íslenskra sönglaga má nefna sönglög frá meginlandi Vestur– og Austur-Evrópu og Finnlandi. Hljómsveitina skipa þeir Guðni Franzson á klarínettu, Tatu Kantomaa á harmónikku, Kristinn Árnason á gítar, Jón Skuggi á bassa og Matthías Hemstock á slagverk. Á tónleikunum kemur Kolbeinn Ketilsson tenór fram með hljómsveitinni, en Kolbeinn hefur undanfarin ár heillað hug og hjörtu óperuunnenda. Hann var í nokkur ár fastráðinn við Kölnaróperuna en á seinni árum hefur hann sungið burðarhlutverk við mörg af stærstu óperuhúsum Evrópu. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00.
Senda grein