Mozart og Nino Rota í dag, sunnudag
20/5/2006
Kammersveit Reykjavíkur tileinkar W.A. Mozart glæsilega dagskrá í tilefni af því að árið 2006 eru 250 ár liðin frá fæðingu meistarans. Fara tónleikarnir fram í Langholtskirkju kl. 20.00 í kvöld, sunnudagskvöld. Á dagskránni eru þrír konsertar: Píanókonsert nr. 25 í C-dúr, Fiðlukonsert nr. 4 í D-dúr og Klarinettukonsert í A-dúr. Kammersveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1974 og með henni spila margir af okkar færustu tónlistarmönnum sem flestir spila einnig með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Á þessum tónleikum spila þrír framúrskarandi einleikarar, þau Einar Jóhannesson, klarinettuleikari, sem um langt skeið hefur verið í fremstu röð tónlistarmanna Íslands og þótt víðar væri leitað, Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari, sem hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum fyrir leik sinn bæði sem einleikari og í kammertónlist og Víkingur Ólafsson píanóleikari en Víkingur kemur beint til landsins úr lokaprófi sínu frá Juilliard tónlistarskólanum í New York og eru þetta því fyrstu tónleikar hans eftir útskrift: Miðasala hefst við innganginn í Langholtskirkju kl. 19.00 í dag. Í dag kl. 17.00 flytur svo Kammersveit Hafnarfjarðar tónlist eftir hið þekkta ítalska tónskáld Nino Rota, sem samdi tónlist við nær allar kvikmyndir Fellini og hlaut frægð af. Hljómsveitarstjórinn Michele Marvulli, sem stundaði nám hjá Nino Rota í tónsmíðum, hefur útsett ballettsvítu Rota, “La Strada”, fyrir kammersveit, en svítan byggir á stefjum úr tónlist kvikmyndarinnar. Útsetninguna gerði Michele Marvulli í tilefni flutnings Kammersveitar Hafnarfjarðar á verkinu á Listahátíð 2006. Á tónleikunum hljómar að auki “Balli per piccola orchestra” eða “Dansar fyrir litla hljómsveit” og píanókonsert Rota í e-moll. “Piccolo mondo antico”, eða “Litli forni heimur”, en hvorugt verkið hefur áður verið flutt á tónleikum hér á landi. Í framhaldi af tónleikunum verður sýning á hinni klassísku kvikmynd Federico Fellinis La Strada frá árinu 1954, með Anthony Quinn og Giulietta Masina í aðalhlutverkum. Fellini er óumdeilanlega einn áhrifamesti kvikmyndagerðarmaður sögunnar og La Strada er meistaraverkið sem honum þótti vænst um, sem og flestum kvikmyndaunnendum. Sýningin verður í Kvikmyndasafni Íslands kl. 20.00. Í samstarfi við stofnun Dante-Alighieri á Íslandi.
Senda grein