Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Sneisafullt og mikil stemmning á tónleikum Makeba

31/5/2006

Hvert sæti var skipað upp í rjáfur á Grand finale tónleikum Miriam Makeba í Laugardalshöll á laugardagskvöld. Tónleikarnir hófust rétt rúmlega níu og stóðu til að verða ellefu. Fór Afríkudrottningin yfir breitt svið í lagavali sínu og enduðu tónleikarnir á hennar frægasta lagi, Pata Pata, sem hvert mannsbarn þekkir. Fór þá allur salurinn á ið og allmargir stóðu upp og dönsuðu. Fagnaðarlátunum ætlaði þá aldrei að linna og bætti Makeba við aukalagi í lokin sem hún og hljómsveitin sungu aðeins við undirleik trumbu. Rödd Makeba er ákaflega kraftmikil og naut hún sín því sérlega vel á tónleikunum í gærkvöldi en það eru ekki margir sem geta fetað í fótspor þessa liðlega sjötuga listamanns sem dillaði sér eins og unglingur á sviðinu í Laugardalshöllinni. Hljómsveit hennar var skipuð listamönnum víðsvegar frá Afríku og nokkrum afrísk ættuðum Bandaríkjamönnum ásamt barnabarni hennar.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica