Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Angelite í Hallgrímskirkju á laugardag og sunnudag

20/5/2006

Búlgarski kvennakórinn Angelite syngur á Listahátíð í Hallgrímskirkju á sunnudag kl. 16.00. Enn eru fáeinir miðar eftir á tónleikana sem hægt verður að kaupa í miðasölu Listahátíðar, Bankastræti 2 á sunnudag til kl. 15.00. Miðasala við innganginn færist í Hallgrímskirkju klukkustund fyrir tónleika, eða verður frá kl. 15.00. Fyrri tónleikar kórsins voru í Hallgrímskirkju í dag, laugardag og var vægast sagt magnað að hlýða á hann og standandi uppklapp enda kórinn talinn sá kvennakór veraldar sem hvað mestrar hylli nýtur í dag. Er um hann m.a. sagt að “Hljómur hans er mitt á milli þess að vera trúarlegur og að hlusta á Björk syngja. Kemst næst því að hlýða á englasöng á jörðu niðri.” Hann hefur komið fram við ýmis tilefni, s.s. á Rauða torginu í Moskvu, á friðarverðlaunahátíð Nóbels árið 1996 og á tónleikum fyrir páfann í Róm, svo fátt eitt sé nefnt. Kórinn hefur gefið út fjölda hljómdiska og unnið með öðrum listamönnum og tónlistarhópum og má þar nefna tenórsöngvarann Luciano Pavarotti, írsku hljómsveitina The Chieftains, spænska flamencosöngvarann Enrico Morente og barkasöngvarasveitina Huun-Huur-Tu.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica