Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Miriam Makeba tók lagið á Hótel Nordica

19/5/2006

Afíkudrottningin Miriam Makeba, velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna, FAO, og einn stærsti listamaður síðustu aldar, hitti aðstandendur Unicef á Íslandi á fjölmennum fundi Hótel Nordica í dag, föstudag, kl. 15.00. Á fundinum notaði Glitnir tækifærið og afhenti Unicef gjöf að upphæð 1.1 milljón króna. Svo vel vill til að á sjávarútvegssýningunni í Brussel í seinustu viku efndi Glitnir til uppboðs á áritaðri treyju knattspyrnugoðsins Ronaldinho og tveimur miðum á úrslitaleik Evrópukeppninnar. Seldust herlegheitin á 5.500 evrur og skuldbatt Glitnir sig til að koma með sama mótframlag til Unicef þannig að alls er þetta um 1,1 milljón ISK. Miriam Makbea ræddi mikið um Afríku á fundum, en rétt fyrir utan Jóhannesarborg rekur hún heimili fyrir fyrrum götustelpur og leggur hún mikið upp úr því að konum sé hjálpað sérstaklega, því margfeldisáhrif þeirrar hjálpar séu mikil. Þær verði jú mæður sem ali af sér dætur og syni. Fundurinn tók óvænta stefnu þegar Miriam Makeba, kölluð Mama Africa, tók lagið. Bar öllum saman um það að það hafi verið ákaflega fögur stund.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica