Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Síðustu miðarnir að seljast á tónleika Makeba í kvöld

20/5/2006

Miriam Makeba, sem nefnd hefur verið "Mama Africa", heldur stórtónleika í Laugardalshöll í kvöld og hefjast þeir kl. 21.00. Best er að hafa hraðann á með að kaupa miða því nú er verið að berjast um síðustu sætin höllinni. Makeba hefur í áraraðir verið í fremstu röð listamanna heims og er af mörgum talin áhrifamesti sendiherra Suður-Afríku. Hún er fædd í Jóhannesarborg árið 1932 og vakti fyrst athygli í upphafi sjötta áratugarins sem söngkona í hljómsveitinni The Manhattan Brothers. Hún yfirgaf þá hljómsveit og gekk til liðs við kvennahljómsveitina The Skylarks, söng með henni á hljóðritun og söng einnig með Djasshljómsveit Alf Herberts á tónleikaför sveitarinnar um Suður-Afríku. Árið 1963 bar hún vitni fyrir Sameinuðu þjóðunum um Apartheid-stefnu heimalands síns og í kjölfar þess var henni gert að yfirgefa landið og afhenda vegabréf sitt. Hún settist um tíma að í Bandaríkjunum og giftist blökkumannaleiðtoganum Stokley Carmichael, sem var félagi í Svörtu hlébörðunum, en þau flúðu síðar til Gíneu og settust þar að. Makeba vakti heimsathygli á ný þegar hún söng með Paul Simon á Graceland-tónleikaferð hans árið 1987. Þegar Nelson Mandela var sleppt úr fangelsi árið 1990 sneri hún aftur til Suður-Afríku. Með Harry Belafonte og Marlyn Monroe Vinsældir Makeba í Bandaríkjunum voru gífurlegar. Hún kom fram í rómaðri afmæliveislu J.F. Kennedy Bandaríkjaforseta árið 1962 í Madison Square Gardens, þar sem Marilyn Monroe sló eftirminnilega í gegn, kom fram og hljóðritaði með ýmsum þekktum listamönnum s.s. Harry Belafonte, en árið 1966 hlutu þau Belafonte Grammyverðlaunin fyrir bestu þjóðlagaplötuna. Lagið Pata Pata er frægasta lag Makeba og hefur verið einkennislag hennar allt frá því það var hljóðritað í Suður-Afríku árið 1956, en lagið náði miklum vinsældum í Bandaríkjunum árið 1967. Miriam Makeba hefur alla tíð verið virk í tónlistarflutningi og aldrei gert greinarmun á tónlist sinni og baráttunni fyrir frelsi og réttindum blökkumanna. Einstök rödd hennar hefur til að bera bæði skýrleika og breidd og nýtur sín jafn vel í kraftmiklum baráttusöngvum og í hjartnæmum afrískum vögguvísum. Tilnefnd til Grammy-verðlaunanna 2001 Makeba hefur sungið inn á ríflega 30 hljómplötur og árið 2001 minnti hún á sig enn á ný með plötunni Homeland. Fyrir hana hlaut hún tilnefningu til Grammyverðlauna, og árið 2002 deildi hún Polar tónlistarverðlaununum með hinu virta tónskáldi Sofiu Giubaldinu. Þótt Makeba hafi alla tíð litið á sig sem söngkonu og listamann fremur en stjórnmálamann hefur hún hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir þrotlausa baráttu sína fyrir auknum mannréttindum, m.a. friðarverðlaun Dags Hammarskjolds árið 1986 og UNESCOtónlistarverðlaunin 1993. Miriam Makeba hefur nú ákveðið að draga sig í hlé frá tónlistinni og helga sig mannréttindabaráttunni og eru þessir tónleikar á Listahátíð Grand finale þessarar miklu listakonu. Sem fyrr segir er Pata Pata frægasta lag Miriam Makeba en einnig má nefna lögin Mbube, Africa Is Where My Heart Lies, Masakane, sem á tungumáli Zulu manna þýðir “að hjálpast að”, Malaika og Click Song, sem vísar í sérstætt tungumál Xhosa ættbálksins.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica